151. löggjafarþing — 90. fundur,  5. maí 2021.

ferðagjöf.

776. mál
[16:01]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Vissulega kom ýmislegt til umræðu þegar við vorum að ræða þessa hugmynd, þetta úrræði, og smíða, en það var þó allan tímann lagt upp með að þetta yrði almennt úrræði fyrir alla eldri en 18 ára sem svona innspýting í hagkerfið. Við vitum að það er mismikil geta og undirliggjandi hvati í raun með þessari ferðagjöf til þess að fara í stærri ferðalög eða fara langt út á land þar sem ýmis annar kostnaður fylgir. En þess vegna vitum við líka að ýmsir hafa nýtt þessa ferðagjöf þá frekar í nærsamfélaginu eða jafnvel til einhverra nota sem snúa kannski ekki beint að ferðalögum. Við skoðuðum líka hvað það myndi þýða að þetta myndi ná til einstaklinga yngri en 18 ára. Það er tæknilega flókið og það er líka einfaldlega flókið út frá því að þá er um að ræða einstaklinga sem ekki eru lögráða. Oft og tíðum eru þar foreldrar með sameiginlega forsjá og annað slíkt. En þá ber líka að líta til þess að við erum hér í þessum úrræðum með barnabótaauka þar sem greiddur verður sérstakur 30.000 kr. barnabótaauki með hverju barni við álagningu opinberra gjalda. Það er í einhverjum tilfellum hægt að líta til þess. En það var aldrei hugmyndin að þetta yrði annað en almennt úrræði. Þetta væri innspýting inn í hagkerfið. Auðvitað er það mjög mismunandi eftir aðstæðum hvers og eins, hvort sem þær eru fjárhagslegar, heilsufarslegar, félagslegar eða annað, hvernig ferðagjöfin er nýtt. En heilt yfir hefur úrræðið virkað mjög vel og fyrirtækin líka boðið ýmiss konar tilboð á móti sem hefur haft mjög jákvæð áhrif, bæði fyrir fólkið sem nýtir gjöfina og ferðaþjónustuna í heild sinni.