ferðagjöf.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fyrir. Ég verð bara að segja alveg eins og er að það er andstætt að segja við hjón á örorku- eða atvinnuleysisbótum með kannski tvö, þrjú börn sem fá 10.000 kr. ferðagjöf — það getur aldrei flokkast mikið undir ferðagjöf. Ég held að það myndi frekar flokkast undir matargjöf, að geta farið út að borða. Kannski telst það ferðalag hjá þeim, ég veit það ekki. Ég hefði viljað sjá víðtækara úrræði fyrir þá sem verst hafa það og hærri upphæðir. Við vorum að ræða bara rétt áðan um 100.000 kr. styrk til atvinnulausra. Það hefði ekki verið neitt vandamál að setja hærri upphæð til t.d. öryrkja og annarra í þessu samhengi þannig að þetta hefði kannski dugað fyrir tveimur, þremur nóttum á hóteli eða nokkrum dögum á tjaldsvæði, það væri einhver möguleiki á því að nýta þetta virkilega til ferðalaga. Eins og þetta er sett upp, þessi lága upphæð, þá sé ég ekki að það sé hægt að kalla þetta ferðastyrk eða ferðagjöf vegna þess að þetta verður ekki ferðagjöf fyrir nema ákveðinn hóp. Stór hópur mun aldrei geta nýtt sér þessa gjöf til ferðalaga. Ég sá einhvers staðar að þetta dygði ekki einu sinni í strætó nema hálfa leið til Akureyrar eða aðra leiðina, þannig að þetta er ekki mikil ferðagjöf. Það hefði kannski verið hægt að setja dæmið upp þannig að fleiri hefðu notið þess og sérstaklega þeir sem þurfa á því að halda.