ferðagjöf.
Herra forseti. Það er í sjálfu sér alveg ágætt að þetta mál skuli vera komið fram aftur og framlengt. Víst er það að reynslan af þessari útgáfu í fyrra er örugglega býsna góð og hefur komið mörgum til góða, bæði fjölskyldum sem söfnuðu saman þessari svokölluðu ferðagjöf og nýttu hana og til hagsbóta fyrir þá sem reka starfsemi í ferðaþjónustu víða um landið. Það er hins vegar eitt sem ég man eftir að ég gerði athugasemd við í fyrra og ætla að gera sömu athugasemd við núna vegna þess að það sama er uppi á teningnum, þetta orð, ferðagjöf. Ég hlýt að spyrja aftur: Hver er gefandi þessarar ferðagjafar? Á sínum tíma var talað um að þetta myndi heita ferðaávísun, sem er hið besta mál, ávísun á ferð eða eitthvað annað sem mönnum stendur hugur til að nota þetta í. Mér finnst ferðagjöf yfirborðslegt nafn vegna þess að þetta úrræði er fjármagnað af skattfé. Það er þjóðin sjálf sem borgar skattana en fær síðan, að því er virðist, gjöf, væntanlega frá sjálfri sér.
Þetta minnir mig aðeins á það, herra forseti, þegar senda átti raunverulegar ávísanir vestur í Ameríku í fyrra, í miðju Covid, og Bandaríkjaforseti heimtaði að undirskrift hans yrði á öllum ávísununum sem sendar voru út þannig að þetta liti út eins og ávísun eða gjöf frá honum sjálfum til þjóðarinnar. Og mér finnst svolítið að með þessu sé ríkisstjórnin að láta í það skína að hún, ríkisstjórnin, sé að gefa þjóðinni eitthvað en því fer fjarri. Það sem greitt er af skattfé er greitt af þjóðinni. Vilji menn kalla þetta gjöf væri sem best hægt að kalla þetta þjóðargjöf vegna þess að þjóðin er að gefa sjálfri sér þetta. Hún er að gefa þeim sem reka starfsemi í ferðaþjónustu og veitingarekstri og öðru tækifæri. Orðið ferðagjöf er klént og hljómar eins og ríkisstjórnin sé að gefa þjóðinni eitthvað sem hún er ekki að gera.
Ég hefði lagt til, herra forseti, í mikilli góðvild að nú þegar málið fer til nefndar þá taki nefndarmenn þetta atriði og gaumgæfi það og síðan verði þetta framlengt með ágætum hætti og endist örugglega og vonandi jafn vel og gagnast jafn vel og það gerði í fyrra. Þetta er í sjálfu sér hið besta mál en umbúðirnar eru bara svo kauðalegar.