151. löggjafarþing — 90. fundur,  5. maí 2021.

loftferðir.

613. mál
[18:17]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður fór yfir það í framsögu sinni að ekki væri eining meðal fræðimanna um það hvort b-liður 1. mgr. 1. gr. frumvarpsins stæðist stjórnarskrá. Ekki var heldur einhugur meðal nefndarfólks sem endurspeglast t.d. í því að þótt öll nefndin, að Pírötum frátöldum, hafi lagt frumvarpið fram þá eru það aðeins fulltrúar stjórnarflokkanna sem standa að nefndaráliti vegna þess að enn hangir inni b-liður frumvarpsins sem áhöld eru um hvort standist stjórnarskrá. Í nefndarálitinu er þetta orðað þannig að ekki sé fyrir að fara fordæmi í dómaframkvæmd um hvernig beri að túlka ákvæðið í því ljósi sem hér er til skoðunar. Mig langar að biðja hv. þingmann að hjálpa mér að þýða þetta á mannamál. Þýðir þetta að meiri hlutinn sé ekki 100% viss á því hvort þetta ákvæði standist stjórnarskrá og sé að beina fólki dómstólaleiðina ef það telur á sér brotið frekar en að leyfa almenningi að njóta vafans?