151. löggjafarþing — 90. fundur,  5. maí 2021.

loftferðir.

613. mál
[18:18]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ari Trausti Guðmundsson) (Vg) (andsvar):

Forseti. Eins og hv. þingmaður benti á er ekki eining meðal fræðimanna. Það er sennilega ekki í fyrsta skipti sem ekki er eining meðal fræðimanna um eitt og annað í íslenskum stjórnskipunarrétti. Við getum ekki farið að munnhöggvast við fræðimenn, meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar. Við höfum hins vegar hlustað á talsmenn ráðuneytanna. Við höfum hlustað á þá fræðimenn sem eru með og á móti, ef við orðum það þannig, fleiri af þeim sem við höfum rætt við eru nú á því að þetta sé í lagi. Síðan tökum við ábyrgð á því ef um verður að ræða óeiningu sem smitast út í samfélagið og þetta lendir þá fyrir dómstólum, þremur dómstigum á Íslandi. Þá er það bara í sjálfu sér til úrskurðar um það hver hafði rétt fyrir sér, meiri hluti Alþingis í þessu tilviki í þessari nefnd og fræðimennirnir sem segja að þetta sé í lagi eða aðrir, og það er nauðsynlegt í samfélagslegu tilliti.