loftferðir.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður sagði að af þeim fræðimönnum sem komu fyrir nefndina hefðu þó fleiri talið b-liðinn vera í lagi gagnvart stjórnarskrá. Það er rangt. Enginn þessara þriggja fræðimanna treysti sér til að fullyrða að þetta væri algerlega í lagi. Sá sem komst næst því spurði einfaldlega hvort væri yfir höfuð þörf á þessu í ljósi þeirra breytinga sem væru orðnar á sóttvarnalögum. Við erum ekki að munnhöggvast við andstæða póla í fræðaheiminum heldur komu allir fræðimennirnir fram með þetta sem álitaefni. Enginn treysti sér til að gefa þessu það heilbrigðisvottorð sem meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar treystir sér til. Ég kalla það ekki óeiningu í samfélaginu, eins og virðulegur þingmaður nefnir það, ef fólk telur stjórnarskrárbrot framið á sér og leitar til dómstóla með það, sérstaklega ef það fær síðan þá niðurstöðu dómstóla að stjórnarskrárbrot hafi verið framin á þeim. (Forseti hringir.) Þess vegna hryggir mig glannaskapurinn í meiri hlutanum (Forseti hringir.) að taka sénsinn á því að þetta standist stjórnarskrá og að fólk geti bara leitað til dómstóla sé það ósátt.