151. löggjafarþing — 90. fundur,  5. maí 2021.

loftferðir.

613. mál
[19:19]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta um.- og samgn. (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðjóni Brjánssyni kærlega fyrir hans innlegg. Ég ætla kannski að byrja á því að nefna nokkuð sem mér yfirsást í ræðu minni þegar ég flutti álit 1. minni hluta. Með mér á því áliti var einmitt hv. þm. Guðjón Brjánsson, þingmaður Samfylkingar, og samþykkur því var áheyrnarfulltrúi í umhverfis- og samgöngunefnd, Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata. Ég biðst forláts á þeirri yfirsjón minni.

Hv. þingmaður nefnir að því hafi verið velt upp í umfjöllun nefndarinnar hver þörfin væri á þessum aðgerðum. Spurningin kemur frá einum þeirra sérfræðinga í stjórnskipunarrétti sem við fengum til okkar, þeim sérfræðingi sem mætti eftir að sóttvarnalögum hafði verið breytt og reglur hertar á landamærum. Það hefði eitt og sér verið fróðlegt að heyra í hinum eftir það. En mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann teldi að við hefðum kannað það nægilega hversu mikil þörf væri á því að fara í svo harkalegar aðgerðir og stinga sér inn á þetta gráa svæði í ljósi núgildandi sóttvarnalaga með tilheyrandi hertu eftirliti á landamærum og svo ég bæti um betur vil ég nefna þá reglugerð sem kynnt var í dag af hálfu heilbrigðisráðherra og mun taka gildi á föstudaginn þar sem farþegar frá 148 löndum eiga nú að fara á sóttvarnahótel vegna þess að þau lönd sem þeir koma frá eru skilgreind sem hááhættusvæði. Vissulega eru þar undanþágur í boði en engu að síður finnst mér fulllítið að tala um belti og axlabönd í þessu tilfelli, ég myndi jafnvel tala um belti, axlabönd og samfellu. En mig langar til að heyra skoðun hv. þingmanns og samþingsmanns míns í umhverfis- og samgöngunefnd á því hvort við höfum farið nægilega ofan í kjölinn á þessu.