loftferðir.
Herra forseti. Við erum hlynnt því að þetta frumvarp verði samþykkt þannig að það létti á álagi á landamærunum, eins og er talað um, þannig að ef maður er erlendur ríkisborgari og ferðamaður og er að koma til landsins þá má meina manni inngöngu inn í landið á brottfararstað. Það er það sem breytingartillaga minni hlutans gengur út á, að það megi gera þetta, það eigi bara ekki við um íslenska ríkisborgara því að stjórnarskráin segir að íslenskum ríkisborgurum verði ekki meinað að koma til landsins. Það er það sem breytingartillagan gengur út á.
Þegar málið verður samþykkt þannig — ég held að það hljóti að verða samþykkt þannig — þá náum við því grunnmarkmiði að taka utan um þennan ofboðslega ferðamannafjölda. Ef maður skilar ekki neikvæðu PCR-prófi á brottfararstað eða bólusetningarvottorði eða vottorði um að hafa fengið Covid og er erlendur ferðamaður að koma til landsins, þá verður honum, á brottfararstað, meinað að koma til landsins. Þannig verður það ef málið verður samþykkt með því að undanskilja íslenska ríkisborgara. En hvað gerist þá með þessa íslensku ríkisborgara, þessa örfáu sem ekki skila PCR-vottorði o.s.frv., og þráast við og eru þá búnir að brjóta sóttvarnalögin? Þá fara þeir í flugvélina, eins og margir sýktir hafa gert hingað til — við þekkjum af smitrakningum að smitin verða síðan innan lands, þau virðast ekki verða í flugvélunum. En ókei, það gæti gerst í flugvélunum. Viðkomandi borgarar koma til landsins og eru teknir þar af lögreglu af því að þeir eru búnir að brjóta sóttvarnalögin, þeir skiluðu ekki vottorði — það er þannig í dag að það verður að skila því á brottfararstað — og eru settir á sóttvarnahótel í 14 daga. Ef þeir eru tilbúnir að fara í skimun þá geta þeir farið í fimm daga sóttkví og skimun eins og lög kveða á um. Þetta eru örfáar hræður.
Ef frumvarpið verður samþykkt eins og lagt er til þá tökum við verulega áhættu á því að brjóta á stjórnarskrárvörðum rétti íslenskra ríkisborgara til að koma til landsins. Það er búið að bólusetja heilbrigðisstarfsfólkið og áhættuhópana og elstu borgarana og við erum að klára þetta, erum á lokametrunum. Til hvers er þetta þá? Til að stöðva það að einhverjir örfáir íslenskir ríkisborgarar sitji í flugvél sem eru síðan gripnir strax og þeir koma til landsins og eru settir á sóttvarnahótel með lögregluvaldi eins og við erum búin að setja í lögin? Þeir koma til landsins. Hver er sóttvarnahættan þar? Hún er verulega lítil. Það var verið að rífast um það þegar við vorum að breyta sóttvarnalögum um daginn og víkka út heimild til að þurfa ekki að fara í sóttkví hérna á Íslandi. Það var verið að samþykkja það um daginn. Það eykur gríðarlega smithættuna innan lands en það var samþykkt um daginn. Það var að frumkvæði heilbrigðisráðherra. Maður þyrfti ekki að fara í sóttkví á Íslandi, sýnir bara PCR-próf á brottfararstað og fer í skimun þegar maður kemur til landsins og er frjáls nema maður komi frá einhverjum mjög áhættusömum svæðum. Samt getur maður komið frá áhættusömum svæðum. Fjöldinn allur sem situr í flugvélinni og þarf ekki að fara í sóttkví.
Samhengi hlutanna er að menn eru tilbúnir til þess að fá ferðamannastrauminn, að fá gríðarlega mikið af mögulegum smitum inn í landið og segja það réttlætanlegt. Ég held að það hafi verið alveg sæmilega skynsamleg ákvörðun af því að við erum komin á svo góðan stað. En á sama tíma er verið að leggja þetta til í þessu frumvarpi til þess að gera þetta eitthvað þægilegra á landamærum, en sóttvarnalega séð eru þetta örfáir íslenskir ríkisborgarar sem þráast við á brottfararstað og eru svo teknir með lögregluvaldi þegar þeir koma til landsins. Hve margir nenna því? Þetta verða örfáar hræður. Ég held að sumir sem eru með einhvers konar mótspyrnu við þessu öllu saman myndu kannski láta reyna á það til þess að fara með það fyrir dómstóla. Þá erum við komin með annan mögulegan dóm á þessar aðgerðir, fyrst á ráðherra og svo núna Alþingi sem brýtur stjórnarskrána ef það væri dæmt þannig. Þetta er engan veginn réttlætanlegt fyrir sóttvarnir. Það væri hægt að færa örlítið til ásinn á því hver áhættan er, færa menn undir það að þeir verði að fara í skyldusóttkví á Íslandi, þessa skyldusóttkví sem ákveðið var að hætta með um daginn, færa örlítið fleiri undir það til að koma til móts við þessi tilvik, þessa örfáu Íslendinga sem nenna að standa í því að verða gripnir af lögreglu þegar þeir koma til landsins vegna þess að þeir framvísuðu ekki einu af þessum þremur vottorðum á brottfararstað.
Þetta er ekki ásættanlegt með tilliti til sóttvarna. Sóttvarnir hafa gengið gríðarlega vel í gegnum faraldurinn og við erum líka gríðarlega heppin að hafa valið þá leið sem við fórum. Í upphafi voru sumir sem sögðu að sænska leiðin væri best og það var mikil umræða um það í samfélaginu. En leiðin okkar reyndist virkilega farsæl og sett var 14 daga sóttkvíargirðing um landið. Það var samkvæmt lögum og stjórnarskrá. Það mátti koma til landsins með 14 daga sóttkví. Þetta skoðuðum við sérstaklega vel í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þegar við höfðum eftirlit með sóttvarnayfirvöldum út frá stjórnarskrárlegum forsendum og lögum. Við skoðuðum það mjög vel. Það mátti setja þessa 14 daga sóttkvíargirðingu í kringum landið. Fyrst var fólk ekki skyldað í skimun, það var prófað fyrst, gætt meðalhófs. Það var prófað fyrst. Það mátti fara í skimun og fara í fimm daga sóttkví og skimun en þá varð að borga fyrir það, þá mátti sleppa við þessa 14 daga. En það virkaði ekki og þá var það látið vera ókeypis. Það virkaði ekki og þá var það gert að skyldu. Þetta voru góðar ákvarðanir og við studdum þær, þær stóðust stjórnarskrá og þar var gætt meðalhófs, þær voru nauðsynlegar í sóttvarnalegu tilliti.
Svo var farið af stað og átti að reyna að keyra þetta mál í gegnum þingið en farið af stað með ákvarðanir sem voru illa ígrundaðar og stóðust ekki lögmætisregluna og voru dæmdar ólöglegar. Þá kom málið til þingsins til að fá heimild fyrir þessu og við veittum hana samkvæmt lögum og reglum og stjórnarskrá. En hér á lokametrunum er lagt til að skylda flugfélög að banna íslenskum ríkisborgurum að fara um borð nema þeir framvísi einu af þessum þremur vottorðum. Þeir koma til landsins eftir að hafa þegar brotið sóttvarnalög og myndu strax verða teknir af lögreglunni. Þetta verða örfáar hræður. Það er ekki réttlætanlegt út frá sóttvörnum að taka séns á því að brjóta stjórnarskrárákvæði og skapa fordæmi — sjáið hvaða fordæmi við værum að skapa fyrir framtíðina. Það fordæmi að taka svona ákvörðun út af einhverjum örfáum hræðum sem skapa mjög litla sóttvarnahættu, mörgum sinnum minni, mörg hundruð ef ekki þúsund sinnum minni sóttvarnahættu en þeir sem þurfa ekki einu sinni að fara í sóttkví — langflestir þurfa ekki að fara í sóttkví sem koma frá grænum og jafnvel appelsínugulum svæðum, nýlega var hætt að krefjast sóttkvíar vegna þess fólks. Það er örugglega tugþúsund sinnum meiri hætta af þeim en af þessum örfáu íslensku ríkisborgurum sem þráast við og brjóta sóttvarnareglur og eru teknir af lögreglu þegar þeir koma til landsins. Það er raunverulega staðan og það sem er á vogarskálunum núna. Þá er komið fordæmi fyrir því að Alþingi Íslendinga samþykki á svona ofboðslega veikum grunni að ganga á rétt Íslendinga til að koma til landsins, stjórnarskrárvarinn rétt Íslendinga í 66. gr., þar sem segir að íslenskum ríkisborgara verði ekki meinað að koma til landsins. Þá er komið fordæmi fyrir því. Þá er hægt að segja: Ja, menn gerðu þetta. Þetta var ekkert sérstaklega nauðsynlegt á sínum tíma, það hefði náð til örfárra einstaklinga í raun og veru. Sóttvarnalega séð var þetta ekkert sérstaklega mikilvægt, miklu minna mikilvægt en aflétting sóttkvíar fyrir bara nokkrum vikum. Þá er komið fordæmi fyrir því, eins og hv. framsögumaður málsins vitnað í áðan, að það sé hægt að framselja menn úr landi. Þá er komið fordæmi en ekki á grundvelli þess að það séu sakamenn sem verið er að framselja til að þeir geti afplánað refsingu í því ríki þar sem þeir brutu af sér. Nei, það er á svona ofboðslega veikum grunni sóttvarnalega séð.
Það væri hægt að fara í mótvægisaðgerðir og ég legg til að þetta mál fari aftur til nefndarinnar og við fáum það á hreint hvaða mótvægisaðgerðir væri hægt að fara í. Það væri t.d. hægt að breyta örlítið löndunum sem þarna eru fyrir þá sem þurfa að fara í skyldusóttkví. Það er hægt að breyta því. Það myndi ekki brjóta stjórnarskrána. Það er alveg víst. En hér er vafi og það er hægt að fara í vægari aðgerðir. Ef maður velur ekki vægari aðgerðir þegar verið er með lögum að takmarka réttindi borgara — það má með lögum takmarka réttindi borgaranna en menn verða að hafa réttmæta ástæður fyrir því, sem er ekki í þessu tilfelli af því að þetta nær yfir einhverja örfáa Íslendinga sem þráast við, sem er sóttvarnalega séð ekki réttlætanlegt af því að það er hægt að fara í aðrar aðgerðir þar sem við náum miklu víðtækari sóttvörnum með því að færa örlítið til nálina varðandi það hvaða fólk þarf að fara í skyldusóttkví út frá því hvaða löndum það kemur frá, frá áhættusamari svæðum.
Þetta er ekki vönduð löggjöf. Hér er ekki gætt meðalhófs þegar verið að takmarka með lögum borgaraleg réttindi fólks sem tryggð eru í stjórnarskrá. Þetta er ekki bara eitthvert stjórnarskrárákvæði. Þetta er eitt af grundvallarstjórnarskrárákvæðunum, grundvöllurinn fyrir öllum öðrum réttindum manns. Þetta er á vogarskálunum þannig að ég bendi landsmönnum á það. Það hefur gengið vel með sóttvarnir og við viljum halda þeim áfram og við viljum hafa það þannig að erlendur ríkisborgari, ferðamaður sem er að koma til landsins, sem framvísar ekki einu af þessum þremur vottorðum, sé meinað að koma til landsins. Við viljum hafa það þannig og við leggjum til að það sé áfram inni en það eigi ekki við um íslenska ríkisborgara. Þeir eru bara meðhöndlaðir samkvæmt þeim lögum sem eru til staðar og eru fyllilega fullnægjandi fyrir sóttvarnir. Ef menn telja að það þurfi að vera einhverjar mótvægisaðgerðir hvað það varðar þá er hægt að hreyfa skilyrðin til annars staðar eins og ég var að nefna varðandi það að setja meiri skyldusóttkví á meiri áhættusvæði, því að appelsínugulu svæðin eru undir þarna, sem við vorum að breyta um daginn og undanskilja skyldusóttkví.
Virðum sóttvarnir. Þetta er að klárast og við erum að fara inn í sumarið. Skemmum ekki á lokametrunum þetta mikilvæga ferli sem við höfum farið í með því að taka séns á að brjóta, og ég myndi segja líklega brjóta, stjórnarskrá landsins og grunnréttindi borgaranna í nánast engum sóttvarnalegum tilgangi. Það er hægt að ná miklu betri sóttvörnum á annan hátt. Gerum þetta vel. Hrösum ekki svona gjörsamlega á lokametrunum. Gerum þetta vel og verum stolt af þessu og verum stolt af okkur.