151. löggjafarþing — 90. fundur,  5. maí 2021.

loftferðir.

613. mál
[20:02]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Jú, það er fínt að málið fari aftur til umhverfis- og samgöngunefndar og þar skal ég gæta þess að þessara upplýsinga verði aflað. En eðlilegast þætti mér nú að stjórnarliðar myndu bara sofa á málinu, skoða það betur með ferskan haus í fyrramálið og átta sig á því að þetta mál á bara að fara í tætarann. Við þurfum ekkert að vinna meira í því í nefndinni.