151. löggjafarþing — 91. fundur,  6. maí 2021.

kostnaður við móttöku hælisleitenda.

[13:08]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Þegar forsætisráðherra Danmerkur talaði um að stefnan væri sú eða markmiðið að enginn sækti um fylgdi sögunni að það væri ekkert víst að það tækist. En að því er stefnt, að því er miðað. Hér er hins vegar farið í þveröfuga átt með því að búa til nýja hvata til þess að menn fari hættulegu leiðina, fari ólögmætu leiðina jafnvel. Því hlýtur það að hafa áhrif, eins og við höfum séð gerast á undanförnum árum með þessari hröðu fjölgun hér á Íslandi í ljósi þeirra skilaboða sem íslensk stjórnvöld hafa sent út, samanborið við fækkun eða alla vega mun minni aukningu annars staðar á Norðurlöndum vegna þeirra skilaboða sem þarlend stjórnvöld hafa sent út. Forsætisráðherra Danmerkur talaði einmitt um að stefnubreytingin væri mun mannúðlegri en sú aðferð sem íslensk stjórnvöld fylgja vegna þess að með nýju stefnunni væri hægt að hjálpa þeim sem þurfa mest á hjálpinni að halda og forgangsraða rétt. Það er ekki gert hér. Ég spyr hæstv. ráðherra einfaldlega: Styður hann þessa nálgun? Styður hann að sama þjónusta eigi við óháð því (Forseti hringir.) hvernig menn koma til landsins? Er hann tilbúinn til að fara í þveröfuga átt við norræn stjórnvöld önnur og í raun fylgja ysta vinstrinu, (Forseti hringir.) eins og það lítur út í þessum málaflokki nú á Norðurlöndum?