viðbragðsáætlun vegna gróðurelda.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þessari vá sem er ein af þeim fjölmörgu hættum sem blasa við viðbragðsaðilum okkar. Ég held að almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafi svo sannarlega sýnt gildi sitt í þeim fjölmörgu áskorunum sem hún hefur mætt síðasta eina og hálfa árið, allt frá óveðrum, snjóflóðum, jarðhræringum, eldgosi og heimsfaraldri. Þessar viðbragðsáætlanir frá 2017 þarf að skoða og það kemur vel til greina að meta þurfi þær að nýju, m.a. vegna stöðunnar sem nú er uppi. Ég mun að sjálfsögðu einhenda mér í það. Við höfum alltaf verið að gera nýjar viðbragðsáætlanir þegar þörf er á slíku eins og við sáum þegar jarðhræringarnar voru við Þorbjörn. Það var mjög gott að komnar voru glænýjar viðbragðsáætlanir áður en eldgosið fór af stað.
Varðandi þyrlustöðuna þá hefur hún aldrei verið betri. Það kom ný þyrla í vikunni til Landhelgisgæslunnar þannig að við höfum þrjár fullbúnar þyrlur þar. Landhelgisgæslan er nú verulega vel búin til að takast á við alls konar áskoranir eins og gróðurelda en það þarf að skoða hvort einhvern búnað vantar til að þyrlurnar geti allar sinnt þessari vá þegar hún steðjar að, eins og gerðist í Heiðmörk nú í vikunni.