151. löggjafarþing — 91. fundur,  6. maí 2021.

viðbragðsáætlun vegna gróðurelda.

[13:23]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég tel að almannavarnir í brunamálum séu í skötulíki. Árið 2019 talaði ég við umhverfisráðherra um þessi mál, 2020 talaði ég við umhverfisráðherra um brunahólf og hættu á skógareldum og síðast í haust talaði ég við hana. Þá voru þessi mál í nefnd. Ég spyr: Er ekkert samtal innan ríkisstjórnarinnar um almannavarnir, um það að tryggja öryggi brunahólfa, gera kleift að komast að eldum, skógareldum? Við þekkjum mýrarelda og mosaelda. Það er mikil hætta á ferð ef upp kæmi eldur fremst í Skorradal í hífandi norðvestanátt. Ég segi bara: Guð hjálpi okkur. Er ekki kominn tími til að taka á þessum málum og koma þeim í lag núna? Það er allt of seint að byrgja brunninn þegar allt er brunnið.