heimildir lögreglu til stöðvunar mótmæla.
Forseti. Í vikunni var mótmælandi sakfelldur í héraðsdómi fyrir brot gegn 19. gr. lögreglulaga. 19. gr. er matskennd og kveður á um fortakslausa skyldu hins almenna borgara til að hlýða fyrirmælum lögreglu. Rétturinn til að mótmæla er stjórnarskrárvarinn og mikilvægt tæki fyrir hinn almenna borgara ætlað að setja þrýsting á stjórnvöld svo við hljótum að vera sammála um að þann rétt þarf að vernda með virkum hætti. Þeim rétti má vissulega setja mörk en þá þarf að fara sérstaklega varlega í þeim efnum. 19. gr. lögreglulaga er mjög matskennd lagaheimild sem yfirvald getur nýtt sér til að stöðva mótmæli og af meðalhófsreglunni leiðir að alltaf þarf að reyna vægustu úrræðin til að ná tilsettu markmiði. Það er augljóst að lögreglan hefur metið það svo á síðustu árum að nauðsyn hafi verið að grípa til harðari aðgerða gegn mótmælendum þegar um hefur verið að ræða mótmæli til stuðnings flóttafólki heldur en á öðrum mótmælum. Viðbrögð lögreglu fyrir fram gagnvart mótmælum til stuðnings flóttafólki hafa auk þess verið mun viðameiri þó að það hafi oft verið frekar fámenn mótmæli.
Við matskenndar ákvarðanir þarf að passa upp á að gæta jafnréttis og tryggja að sömu viðmiðum sé beitt sama hver á í hlut. Telur hæstv. dómsmálaráðherra að það sé réttlætanlegt að eins matskennd regla og 19. gr. lögreglulaga sé notuð til þess að leysa upp mótmæli? Hvernig er fræðslu til lögreglumanna háttað varðandi beitingu reglunnar? Hvernig fer eftirlit og endurskoðun á beitingu reglunnar fram?