151. löggjafarþing — 91. fundur, 6. maí 2021.
málefni innflytjenda.
452. mál
Hæstv. forseti. Ég kem hingað upp til að fagna því að þetta mál fari aftur til hv. velferðarnefndar að minni beiðni þar sem fjallað verður um þá óvissuþætti sem eru í frumvarpinu og snúa sérstaklega að kostnaði frumvarpsins og afleiddum kostnaði. Þingflokkur Miðflokksins getur ekki stutt málið eins og er og eins og það stendur og mun taka afstöðu til málsins eftir frekari umfjöllun nefndarinnar.