151. löggjafarþing — 91. fundur,  6. maí 2021.

málefni innflytjenda.

452. mál
[13:42]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Þetta mál hefur verið kallað aftur inn til nefndar. Ég sem framsögumaður tek undir það og við tökum það til okkar og fjöllum frekar um það og vitum hvort við getum veitt betri upplýsingar, sem virðist vanta að einhverra mati. Við tökum það til okkar og fjöllum betur um það.