málefni innflytjenda.
Virðulegi forseti. Ég er komin hingað í ræðustól Alþingis til að lýsa yfir stuðningi við þetta mál. Það er löngu kominn tími á að við samræmum móttöku flóttafólks og hlutverk Fjölmenningarseturs er mikilvægt í því til að þau sveitarfélög um allt land sem hafa lýst sig tilbúin til að taka á móti fólki á flótta fái samræmdar leiðbeiningar og geti unnið saman. Þetta mál er af hinu góða. Því miður hafa þingmenn Miðflokksins stigið hér upp í ræðustólinn hver á eftir öðrum með útúrsnúninga um eitthvað allt annað en það sem þetta mál snýst um. Málið snýst um betri þjónustu við fólk sem leitar hingað til okkar eftir vernd og aðstoð og þjónustu sem það á skilið og þetta er fyrsta skrefið af mörgum nauðsynlegum í því að búa til samræmda stefnu í málefnum innflytjenda og fólks á flótta. Ég vil þakka fyrir þetta mál og vona að við getum öll stutt það heils hugar.