mótun sjálfbærrar iðnaðarstefnu.
Herra forseti. Það er einkar ánægjulegt að þetta mál sé að klárast. Þetta hefur verið ansi löng fæðing enda byrjaði málsmeðferð á hugmyndum um iðnaðarstefnu á Íslandi í kringum 1978 með tillögu ágæts Framsóknarmanns á þeim tíma. Þetta er ekki alveg búið. Það vantar í raun stefnuna sjálfa, en ég er afskaplega þakklátur fyrir að þetta mál fari núna eitt skref áfram í viðbót. Ég þakka atvinnuveganefnd fyrir vinnu hennar í málinu og ég vona að nú klárist þetta almennilega. Öll almennileg ríki eiga að vera með einhvers konar samþætta iðnaðarstefnu.