framkvæmd EES-samningsins.
Virðulegi forseti. Það sem ég reyndi að rekja hér í fyrra andsvari mínu, og þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnirnar, eru í rauninni bæði aðdragandi málsins í stuttu máli og síðan hver staðan er nú. Eins og kynnt var bæði fyrir hv. utanríkismálanefnd og ríkisstjórninni þá höfum við sent svarbréf þar sem okkar sjónarmið koma mjög skýrt fram. Ég ætla ekki að endurtaka okkar sjónarmið. Þau eru mjög skýr og þau eru vel unnin og þannig stendur málið núna.
En mér finnast hins vegar þau rök sem við færum fram í málinu vera þess eðlis, það er mín skoðun, að taka eigi tillit til þeirra. Ég vek athygli á því að framkvæmd EES-samningsins hefur gengið mjög vel hér á Íslandi. Ég vek athygli á því að þannig er það líka ef við berum það saman við þau lönd sem eru í þessu samstarfi. Það liggur alveg fyrir, þetta er 25 ára gamall samningur, að þegar við innleiddum hann, eins og ég nefndi hér áðan, í því máli sem hv. þingmaður spyr um þótti það fullnægjandi og voru ekki gerðar athugasemdir við það. Þannig stendur það mál. Okkar afstaða er mjög skýr. Það hefur komið fram og verið kynnt fyrir hv. utanríkismálanefnd, samþykkt í ríkisstjórn og verið sent til ESA.