framkvæmd EES-samningsins.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferð á þessari skýrslu. Ég ætla aðeins að hlaupa á nokkrum atriðum. Ég vil byrja á að þakka ráðherra fyrir að flytja okkur skýrsluna og þakka að sjálfsögðu starfsfólki utanríkisþjónustunnar fyrir að vinna hana og gera þetta ágæta yfirlit, því að auðvitað er þessi skýrsla fyrst og fremst yfirlit yfir EES-samstarfið eða framkvæmd EES-samningsins, hún er ekki beint stefnumörkun eða lögð fram sem annars konar plagg. Ég vil hins vegar koma því strax á framfæri að ég sakna þess að ekki hafi enn þá verið unnin nein sérstök úttekt á kostum og göllum EES-samningsins. Það var unnin ágætisskýrsla sem lýsti fyrst og fremst kostum þess að vera í samstarfinu en við verðum líka að þora að ræða það sem betur má fara, mögulega galla o.s.frv. Ég sakna þess að það hafi ekki verið gert, herra forseti, því að ég get ekki ímyndað mér að nokkur samningur sé þess eðlis að á honum séu bara kostir en engir gallar eða hættur.
Það er nauðsynlegt fyrir Ísland sem eyþjóð lengst úti í Atlantshafi að eiga í góðu samstarfi við önnur ríki og taka þátt í alþjóðastarfi og ég fer kannski nánar yfir það í hinni skýrsluumræðunni sem verður síðar í dag. Mig langar að nefna svokallaða bókun 35, sem hér var komið aðeins inn á áðan. Ég verð að segja að miðað við það sem mér heyrðist á svörum hæstv. ráðherra við spurningum hv. þm. Ólafs Ísleifssonar er ekki gert ráð fyrir því með neinum hætti að Ísland geti tapað þessu máli sem ESA hefur höfðað gegn okkur. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að hafa það á hreinu hvort til sé einhver viðbragðsáætlun eða plan ef svo illa fer, sem við vonum að sjálfsögðu að verði ekki. Ég hef fulla trú á því að sú vinna sem er í gangi af hálfu ráðuneytisins að svara ESA sé góð og við höfum fengið ákveðna kynningu á því í utanríkismálanefnd og bökkum við það allt saman upp. Ég hef bara áhyggjur af því ef ekki er til einhver viðbragðsáætlun ef þetta fer illa.
Ég ætla aðeins að koma inn á nokkra staði í skýrslunni, þetta er ágætisyfirlit. Á bls. 22 er fjallað um orku- og loftslagsstefnu Evrópusambandsins til 2030. Þetta er náttúrlega sú stefna í rauninni sem hefur verið innleidd hér beint og óbeint á undanförnum árum, því miður, ekki síst með þeirri aðferð sem beitt var hér varðandi þriðja orkupakkann síðastliðið sumar. Þá erum við að taka skref inn í þennan orkupakka Evrópusambandsins og við munum sjálfsagt halda því áfram þegar þessi svokallaði hreinorkupakki kemur nema eitthvað breytist.
Hér er rætt um bókun 35 sem ég fjallaði örlítið um í upphafi, ég ætla ekki dýpra í það. Ég vek þó athygli á því að þetta er gríðarlega mikilvægt og stórt mál og mikilvægt að fá úr því skorið. Það er að sjálfsögðu okkar krafa að íslensk lög gangi framar erlendum lögum og er það eitthvað sem vonandi næst að vinna með góðum rökstuðningi, sem ég efast ekki um að eigi eftir að verða.
Upptalningin hér á tölulegum upplýsingum er mjög góð. Hún mun gagnast okkur í samanburði og til að velta málunum fyrir okkur. Á bls. 14 og 15 er ágætlega gerð grein fyrir því hvernig innleiðingarnar hafa gengið fyrir sig. Meðan við erum í samstarfi, meðan við tökum á okkur ákveðin verkefni og skyldur og höfum skuldbindingar, þá hljótum við að þurfa að standa undir því. Þar af leiðandi er mikilvægt, hvað sem okkur svo finnst um allt sem kemur frá Evrópusambandinu og allt sem við þurfum að innleiða, að við stöndum undir því. Svo virðist sem það sé eitthvað á brattann að sækja, en það er líka athyglisvert að sjá gríðarlega fjölgun innlendra reglugerða á árinu 2020 frá árunum áður, sem kemur fram í töflu á bls. 14. Það er í raun merkilegt að sjá hversu ofsalegur fjöldi hefur verið innleiddur.
Hagsmunagæslan, ég ætla að koma örstutt inn á hana. Það er mjög mikilvægt, eins og hæstv. ráðherra kom inn á og ég fagna því ef það er skýr fókus á það, að sjá til þess að sendiráð okkar, þeir sem vinna fyrir okkur þar, séu nægilega vel mönnuð til að þau geti staðið undir þessari miklu ábyrgð. Við eigum að horfa til þess að auka enn frekar í það ef þörf er á, því að þetta eru mikilvæg mál sem þar er verið að vakta fyrir okkur. Að sjálfsögðu þurfa fagráðuneytin svokölluðu líka að vera á tánum og mögulega fjölga sínu starfsfólki þar einnig. En það er mjög mikilvægt að við vöktum allt sem er á ferðinni hjá Evrópusambandinu og getur endað í EES-samningnum.
Ég ætla svo sem ekki að fara mikið dýpra í þetta, herra forseti. Ég vil þó benda á hér í lokaorðunum og taka undir það að fjölþjóðleg samvinna er mikilvæg. Við höfum þó séð að þeir sem eru hinum megin við borðið þegar kemur að EES-samningnum leitast stundum við að túlka eða beita honum kannski öðruvísi en við viljum meina að hann sé, eins og sást í þessu bóluefnamáli eða banni við útflutningi frá Evrópusambandinu. Ráðherra fór ágætlega yfir þau viðbrögð. En það er hins vegar ljóst að Evrópusambandið lítur á að þetta sé samningur sem hægt er að sveigja svolítið til þegar á þarf að halda og ég held að það sé kominn tími til að Íslendingar nýti sér það líka þegar við á.