151. löggjafarþing — 91. fundur,  6. maí 2021.

framkvæmd EES-samningsins.

764. mál
[14:51]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir andsvarið. Ég er ekki sammála hæstv. ráðherra um að þeir sem grafi mest undan EES-samningnum séu ESB-sinnar, þvert á móti, enda sýndi það sig að það voru þingmenn Miðflokksins sem stóðu hér fyrir einu lengsta málþófi sem um getur í sögu þingsins vegna orkupakkainnleiðingar í EES-samninginn. Það voru ekki ESB-sinnar sem stóðu þar í stafni.

En það er rétt og við vitum að stór hluti þeirra gerða sem við höfum verið að taka inn hér á Alþingi eru afleiðingar af efnahagshruninu og við erum í raun enn þá að vinna okkur út úr þeim afleiðingum til að bæta leikreglur á fjármálamarkaði. Margt af því er mjög tæknilegs eðlis og væri óskandi að við færum að færa okkur loks aðeins frá þeim fasa og fara í aðrar áttir.

Ég kannast ekki við, herra forseti, að það séu ESB-sinnar sem hafi talað um 90% upptöku, að það sé markmiðið varðandi innleiðingu regluverks ESB í gegnum EES-samninginn. Ég tel hins vegar, og ég held að hæstv. utanríkisráðherra sé sammála mér í því, að 13,4% sé allt of lágt þó að við höfum verið að vinna okkur í haginn að undanförnu. Ég held að við þurfum að bæta í þegar kemur að því til að styrkja þetta innleiðingarferli. En sömuleiðis þurfum við að vinna að þessu til að við séum ekki á hælunum og séum ekki að vinna upp einhvern stabba sem hefur safnast upp. (Forseti hringir.) Það eru ekki góð vinnubrögð. Ég held að við séum sammála því að reyna að vinna að þessu. (Forseti hringir.) En ég kannast ekki við að 90% markmiðið sé eitthvað sem haldið hefur verið hátt á lofti hér í þingsal.