framkvæmd EES-samningsins.
Ég þakka hæstv. ráðherra. Það er þetta með tölfræðina sem við vitum að er til margra hluta nytsamleg. En það er líka hægt að segja ýmislegt með tölfræði sem ekki er í samræmi við veruleikann, afleiðingarnar, sem hægt er að lesa út úr statistíkinni eða tölfræðinni. Þarna held ég að ráðherrann viti auðvitað að það er gríðarlegur fjöldi af alls konar gerðum sem eru samþykktar innan Evrópusambandsins sem myndu ekki varða hagsmuni Íslands nokkru einasta máli. Þetta veit ráðherrann auðvitað en ég ætla ekkert að karpa um það við hann. Þetta lýtur líka að því sem talað er um í sambandi við tollamál en þá eru akkúrat líka talin tollnúmer og sagt að það sé 90% tollfrelsi. Ég get komið og bent á að í gögnum frá OECD komi fram að tollvernd á landbúnaðarafurðum hér á landi sé 77% en einungis 4% í Evrópusambandinu. Það er ein statistík sem hægt er að nefna.
Ég held að það verði að horfa á þetta út frá hagsmununum. Þessi statistík segir ekkert um hagsmunina. Hvaða tollnúmer eru þetta? Hvaða hagsmunir eru á bak við tollnúmerin? Ef engir hagsmunir eru á bak við stóran hluta þessara tollnúmera skiptir engu máli hvaða hlutföll það eru. Það skiptir máli hverjir hagsmunirnir eru. Mér finnst hæstv. ráðherra forðast að nefna hagsmunina. Hann kýs frekar að halda sig við þessa tölfræði. Ég er ekkert að efast um að hæstv. ráðherra kunni að telja og leggja saman en það er ekki það sem þetta snýst um, þetta snýst um hagsmunina sem að baki búa.