framkvæmd EES-samningsins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir og gríp boltann frá honum. Fyrst aðeins af því að við værum að taka fullt af einhverjum hlutum sem myndu ekki snerta okkur: Ég held að hv. þingmaður hafi ekki tekið gott dæmi þar vegna þess að ef við t.d. gengjum inn í Evrópusambandið tækjum við mikið af gerðum, t.d. í sjávarútvegsmálum. Það skiptir lönd sem ekki stunda sjávarútveg litlu máli af því að þau eru ekki nálægt sjó, en það myndi skipta okkur miklu máli. Svo sannarlega má nefna að mjög mikið af því samstarfi eða stefnum sem við höfum ekki aðgang að núna myndi hafa mikil áhrif á okkur. Sjávarútvegsmálin myndu augljóslega hafa gríðarlega mikil áhrif á okkur ef við þyrftum að taka allar gerðir frá Evrópusambandinu sem við þyrftum að gera ef við værum þar inni.
Varðandi tollamálin: Ef ég og hv. þingmaður færum á morgun og stofnuðum innflutningsfyrirtæki flyttum við inn eftir tollnúmerum. Nú er enginn tollur á þessu, það er 27% tollfrelsi í Evrópusambandinu, 90% hjá okkur. Ef við flytjum eitthvað inn þá flytjum við það inn á þessum tollnúmerum, en ef við gengjum í sambandið myndi tollurinn hækka. (Gripið fram í.) Það eru bara hagsmunir okkar sem innflytjendur og neytendur. (JSV: Hvað er stóra samhengið?) Það er nákvæmlega stóra samhengið. Hv. þingmaður er svolítið mikið að grípa fram í núna og allt í góðu með það.
Varðandi landbúnaðinn: Ef við viljum minnka tollvernd í landbúnaði gerum við það vegna þess að við erum með okkar viðskiptafrelsi, það er svo einfalt, við ráðum því. Ef við ákveðum á morgun hér á Alþingi Íslendinga að hafa 100% tollfrelsi á landbúnaðarvörum þá kemur fram frumvarp og við samþykkjum það vegna þess að við ráðum því. Ef við gengjum inn í Evrópusambandið myndum við ekki ráða því lengur, þá myndu aðrir ráða því. Það eru stórir hagsmunir, virðulegur forseti, að við höldum okkar viðskiptafrelsi.