151. löggjafarþing — 91. fundur,  6. maí 2021.

framkvæmd EES-samningsins.

764. mál
[15:50]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra aftur. Mér sýnist að við séum orðnir sammála um að við getum ekki fundið út úr þessu í pontunni. En ég legg mikla áherslu á það að þegar við erum að ræða svona mál verðum við að gera það út frá hagsmununum sem að baki liggja. Það skiptir máli hvort á bak við tollnúmer er milljarða innflutningur hrávara í tiltekna starfsemi eða hvort það er innflutningur þar sem verið er að flytja inn fyrir 10.000 kr. á ári. Það hlýtur að skipta máli þegar þetta er vegið og metið.

Það er alveg rétt hjá hæstv. utanríkisráðherra að innan Evrópusambandsins, sem er tollabandalag að grunni þó að það sé auðvitað miklu meira en tollabandalag, þá er sameiginleg tollastefna. Það hefur áður komið fram í þessari umræðu varðandi fríverslun og fríverslunarsamninga þar sem hæstv. ráðherra er auðvitað mjög stoltur af því hafa samningsfrelsi, en hann hefur ekki nýtt það, sýnist mér, mjög verulega í sinni ráðherratíð til að gera marga fríverslunarsamninga þó að honum sé það fullkomlega frjálst og heimilt.

Fríverslunarsamningar EFTA, sem við njótum auðvitað góðs af, og fríverslunarsamningarnir sem við höfum þó gert, eru auðvitað færri en hjá Evrópusambandinu. Og þó að hæstv. ráðherra kjósi að telja alla Kínverja með þá held ég að það sé líka enn ein æfingin í meðferð talna sem mér finnst eiginlega varla vera við hæfi þegar við ræðum mál af þessu tagi sem skipta okkur öll miklu máli. En svona er það nú.