151. löggjafarþing — 91. fundur,  6. maí 2021.

framkvæmd EES-samningsins.

764. mál
[16:02]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég vil eins og aðrir hv. þingmenn þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa skýrslu og þakka þeim þingmönnum sem hafa tekið þátt í umræðunni. Eins og ég hef oft sagt í þessum stól þykir mér skorta á að við tökum oftar umræðu um alþjóðamál. Það fer líka vel á þeirri breytingu sem gerð hefur verið að við tökum umræðu um tvær skýrslur, annars vegar um framkvæmd EES-samningsins og svo hina sem við ræðum hér á eftir.

Þetta er stuttur tími og augljóslega ekki hægt að fara yfir allt hér en mig langaði að koma inn á hagsmunagæslu Íslands í EES-samstarfinu og hrósa hæstv. ráðherra fyrir það hvernig hann hefur tekið á henni á síðustu árum eða þann tíma sem hann hefur verið í embætti. Það skorti nefnilega svolítið á það áður að við horfðum á hagsmuni Íslands þegar að þessum samningi kom. Ég held að við höfum misst svolítið fæturna í því þegar ákveðið var að hefja samningaviðræður við Evrópusambandið um inngöngu, þá fór fókusinn í öfuga átt og hagsmunagæslan gleymdist svolítið. Þess vegna er svo mikilvægt að það hafi verið tekið hér föstum tökum. Sá forgangslisti ríkisstjórnarinnar sem við sjáum nú er í rauninni bara nýlegt fyrirbrigði, og er í rauninni alveg ótrúlegt að það sé tiltölulega nýlegt, þetta er í þriðja sinn sem slíkur listi er lagður fram, og mikilvægt að við höfum slíkan lista vegna þess að það er auðvitað óvinnandi vegur fyrir hæstv. utanríkisráðherra eða utanríkisráðuneytið að vinna með þetta, þetta er auðvitað þannig samkomulag að hvert og eitt ráðuneyti verður að bera ábyrgð á sínum málaflokkum. Ég vil bara hrósa því að við séum þó komin á þennan stað og það sé skýrt hvar áherslurnar okkar liggja. Þá geri ég líka ráð fyrir því að verið sé að fylgja því eftir, bæði úti í Brussel og svo hér heima í ráðuneytunum hverju fyrir sig, þ.e. þessum forgangslista.

Virðulegur forseti. Þegar rætt er um EES-samninginn eru sumir sem vilja hreinlega ganga í Evrópusambandið. Ég er ekki á þeirri línu en ég held að EES-samningurinn sé okkar allra mikilvægasti samningur og skipti okkur alveg gríðarlega miklu máli. Mér finnst stundum eins og umræðan fari einhvern veginn út í það að við þurfum að ganga í Evrópusambandið því að annars sé svo mikið vesen að gæta hagsmuna okkar í þessum samningi. Það er náttúrlega reginmisskilningur, sem maður sér svo vel þegar maður fær tækifæri til að heimsækja Brussel og fá kynningu á Evrópusambandinu og áttar sig á því að allar Evrópusambandsþjóðirnar eru með fjölda manna og heilu skrifstofurnar til að tryggja hagsmuni sína gagnvart sambandinu þótt þær séu aðili að sambandinu sjálfu og eigi þingmenn á þinginu. Það er því alger misskilningur ef fólk heldur að við þurfum þá minna að gæta hagsmuna okkar. Það þýðir í rauninni bara enn meira ef eitthvað er. Ég hef áður sagt það í þessum stól að það kom mér á óvart á einum af mínum fyrstu alþjóðlegu fundum sem ég fór á sem þingmaður þegar ég sat þar með þingmönnum frá löndum Evrópusambandsins og áttaði mig á því að þeir tókust á og skömmuðu kollega sína sem sátu á Evrópuþinginu. Ágreiningurinn er svo sannarlega víða og engin leið að segja að það að ganga inn í Evrópusambandið tryggi einhvern veginn betur hagsmuni Íslands í öllu þessu samstarfi, því það er einfaldlega ávallt hlutverk okkar.

Ég verð að segja það, virðulegur forseti, að ég held að vel hafi verið að því staðið. Það var líka mjög mikilvægt þegar samningurinn átti stórafmæli, 25 ára afmæli, að við náðum að taka svolítið meira upp umræðuna um hann. Maður áttaði sig á því í tengslum við umræðuna um orkupakkann sérstaklega, en við hefðum kannski átt að vera búin að kveikja á ljósunum fyrr, að það eru allt of margir sem átta sig ekki á gildi þessa samnings og hvað hann þýðir raunverulega mikið fyrir okkur. Þess vegna vil ég bara hrósa því starfi sem þar hefur verið unnið en líka brýna okkur sem eigum sæti í þessum sal að halda á lofti gildi þessa samnings og bera ábyrgð á því sem okkur ber að bera ábyrgð á. Hvað á ég við með þessu? Ég á við það að ég held að í gegnum tíðina hafi íslenskir stjórnmálamenn of oft þvegið hendur sínar af frumvörpum eða þingsályktunum á þeim forsendum að þetta komi til frá Evrópusambandinu, sé út af EES-samningnum og að við höfum ekkert með það að segja. Það er auðvitað alls ekki svo og þess vegna held ég að þetta sé á báða bóga. Við þurfum að tala fyrir samningnum og því sem hann veitir okkur. En við þurfum líka að muna að bera ábyrgð og gæta ávallt hagsmuna okkar í hvívetna.

Hv. þm. Sigríður Á. Andersen, vinkona mín, talaði á undan mér og tjáði þá skoðun sína að henni fyndist ljóður á því að Parísarsáttmálanum og markmiðum okkar í honum hefði einhvern veginn verið blandað inn í EES-samninginn. Ég hef ekki verið alveg sammála henni í þeim efnum og það er kannski útfærsluatriði hvernig ætti að vinna það. Mig langar þó að segja í þeim efnum — í skýrslunni er talað um græna sáttmálann og hvernig EES-samstarfið hefur verið notað í þessum samskiptum við Evrópusambandið — að ég held að við getum verið ofboðslega brött þegar kemur að þessum málaflokki. Ég vil reyndar meina að loftslagsmálin séu sá málaflokkur sem sé hvað allra brýnastur fyrir okkur hér á landi sem og annars staðar. Ég held að eina leiðin til að ná árangri í því sé að þjóðirnar vinni saman eins og gert var til að mynda með Parísarsáttmálanum og það sé í rauninni eina leiðin til að vinna þetta stríð. Þó að við þurfum að gera betur höfum við líka gert vel í gegnum tíðina og ég held líka að við höfum svo mörg tækifæri, við höfum svo góða sögu að segja og svo miklu að miðla til annarra þjóða þegar að þessu kemur. Nýsköpun á sviði grænnar orku er mikil hér á landi og við höfum ýtt enn frekar undir slíkt, til að mynda með skattalegum hvötum, frumvarpi sem við samþykktum hér ekki alls fyrir löngu, og þarna finnst mér að okkar áherslur eigi að liggja, þ.e. á rannsóknir, vísindi og nýsköpun, sérstaklega út frá loftslagsmálum.

Að lokum vil ég bara segja að EES-samningurinn er auðvitað okkar allra stærsti og mikilvægasti viðskiptasamningur. Það að hér eigi í venjulegu árferði — það er ekki hægt að segja að það hafi verið undanfarið — fólk að geta flætt frjálst yfir landamæri og fjármagn og vörur og annað þess háttar er kannski stærsti kosturinn við þennan samning. En það eru líka aðrar áætlanir sem okkur hefur boðist aðgangur að. Þá vil ég sérstaklega nefna rannsóknaráætlanir eins og Horizon Europe, Erasmus og fleiri sem skipta ofboðslega miklu máli. Ég held að eina leiðin fyrir Evrópu til að reyna að ná aftur þeim krafti sem Evrópa ætti að búa yfir þegar kemur að nýsköpun, rannsóknum og vísindum sé að vinna saman og leiða saman vísindamenn frá ólíkum löndum. Þess vegna held ég að það sé mjög mikilvægt að haldið sé utan um þessar áætlanir og vinnu okkar þar og það er alveg einstaklega áhugavert að sjá hvað íslenskir vísindamenn hafa náð miklum árangri í því að sækja inn í þessa sjóði. Það eru auðvitað fjármunir og væri hægt að horfa á það þannig að við höfum fengið meiri fjármuni út úr sjóðunum en við höfum lagt í þá. En það er samt sem áður ekki stóra málið. Stóra málið er auðvitað hvað kemur út úr þessari vinnu. Það er raunverulegur auður sem við fáum út úr þessu.

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Ég þakka fyrir þessa umræðu og hvet til þess að við höldum áfram að tala fyrir og tala með EES-samningnum.