utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegi forseti. Skýrslan sem ég hef lagt fyrir Alþingi um utanríkis- og alþjóðamál er sú síðasta þess efnis á yfirstandandi kjörtímabili. Þessi tími hefur einkennst af sviptingum, bæði í íslensku samfélagi og á alþjóðavettvangi, ekki síst undanfarið ár sem fordæmalaus heimsfaraldur hefur varpað skugga sínum yfir. Utanríkisþjónustan hefur lagað sig vel að þessum breyttu tímum, bæði hvað varðar einstök málefnasvið en líka með tilliti til rekstrar og skipulags. Ég er stoltur af þeim árangri sem við höfum náð til að styðja við íslenskt atvinnulíf og gæta hagsmuna borgaranna. Á tímum heimsfaraldursins höfum við umfram allt kappkostað að laga starfsemina að breyttum aðstæðum og til að mæta þörfum íslenskra fyrirtækja og borgara. Leiðarljósið í þeim efnum, eins og allar götur frá stofnun utanríkisþjónustunnar í apríl 1940, hefur verið að standa vörð um hagsmuni lands og þjóðar á erlendum vettvangi. Breytt forgangsröðun og breytingar sem gerðar voru í upphafi kjörtímabils hafa skipt sköpum um það hversu vel hefur tekist til í þeim þrengingum sem vonandi eru brátt að baki. Utanríkisþjónusta Íslands hefur gegnt og mun áfram gegna mikilvægu hlutverki fyrir íslensku þjóðina. Við erum okkar eigin gæfu smiðir og enginn gætir hagsmuna okkar ef við gerum það ekki sjálf.
Virðulegi forseti. Aukin áhersla á málefni norðurslóða hefur verið rauður þráður í íslenskri utanríkisstefnu á síðustu misserum. Ber þar fyrst að nefna að Ísland hefur gegnt formennsku í Norðurskautsráðinu undanfarin tvö ár. Ráðherrafundur sem haldinn verður í Reykjavík síðar í mánuðinum markar lok hennar en jafnframt ber hann upp á aldarfjórðungsafmæli Norðurskautsráðsins. Samkvæmt formennskuáætlun Íslands hefur áhersla verið lögð á þrjú meginsvið; málefni hafsins, loftslagsmál og endurnýjun orku og fólk og samfélög á norðurslóðum, auk þess að styrkja ráðið. Þótt farsóttin hafi vissulega sett strik í reikninginn hefur formennskuáætlun Íslands gengið vel. Vonir standa til þess að á ráðherrafundinum samþykki ráðherrar aðildarríkjanna niðurstöður verkefna sem unnin voru í formennskutíð Íslands og starfsáætlun ráðsins undir komandi formennsku Rússlands.
Samkvæmt stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar eru málefni norðurslóða í forgangi í íslenskri utanríkisstefnu, enda snerta þau hagsmuni Íslands með margvíslegum hætti. Gildandi norðurslóðastefna byggist á þingsályktun frá 2011 en síðan þá hefur orðið mikil þróun í málefnum norðurslóða, m.a. vegna áhrifa loftslagsbreytinga. Alþjóðlegur áhugi á svæðinu hefur aukist töluvert, einkum vegna væntinga um opnun siglingaleiða og möguleika á auðlindanýtingu. Við sjáum jafnframt vissar breytingar á öryggisumhverfinu. Í ljósi þess og í tilefni af því að Ísland gegnir formennsku í Norðurskautsráðinu var tímabært að ráðast í endurskoðun norðurslóðastefnunnar. Ég skipaði því þingmannanefnd, undir forystu hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur, með fulltrúum allra þingflokka og fól henni að fjalla um málefni norðurslóða út frá víðu sjónarhorni. Nefndin skilaði tillögum í mars og á grundvelli þeirra hef ég lagt fram þingsályktunartillögu um nýja norðurslóðastefnu. Samkvæmt henni skal ný norðurslóðastefna byggjast áhersluþáttum sem lúta m.a. að alþjóðasamstarfi um málefni svæðisins, viðbrögðum við neikvæðum áhrifum loftslagsbreytinga, velferð íbúa á norðurslóðum og nýtingu efnahagstækifæra, svo að fátt eitt sé nefnt. Tillögurnar miða að því að tryggja hagsmuni Íslands í víðum skilningi með sjálfbæra þróun og friðsamlegt samstarf að leiðarljósi.
Til marks um aukna áherslu á okkar nánasta umhverfi á norðurslóðum eru svo tillögur um aukið samstarf Íslands og Grænlands sem finna má í nýútkominni skýrslu Grænlandsnefndar sem ég skipaði í apríl 2019. Tillögurnar 99 fjalla um möguleika á auknu samstarfi stjórnvalda, sveitarfélaga, stofnana, einkageirans og frjálsra félagasamtaka. Leggur nefndin m.a. til að Grænland og Ísland geri með sér rammasamning um samstarf í framtíðinni og að lögð verði fram þingsályktunartillaga á vorþingi þar sem lýst er vilja og markmiðum Íslands um aukið samstarf. Sú tillaga hefur þegar verið lögð fram og bíður afgreiðslu þingsins.
Þá er norrænt samstarf sem fyrr einn af hornsteinum íslenskrar utanríkisstefnu og færa má fyrir því rök að mikilvægi samvinnunnar hafi aukist á undanförnum misserum og árum. Löndin hafa í vaxandi mæli tekið upp mál eins og loftslagsmál, öryggismál og utanríkispólitísk mál. Það má t.d. sjá á eflingu samstarfs Norðurlandanna á sviði öryggis- og varnarmála, NORDEFCO, og skýrslu Björns Bjarnasonar, fyrrverandi ráðherra, um dýpkun norræns samstarfs á sviði utanríkis- og öryggismála sem kom út um mitt síðasta ár.
Virðulegi forseti. Ísland skipar sér í lið vestrænna lýðræðisríkja sem vilja standa vörð um mannréttindi og lýðræðisleg gildi sem alþjóðakerfið byggist á. Því miður hefur undanfarið ár sýnt að nauðsynlegt er að bregðast staðfastlega við þeirri neikvæðu þróun sem víða hefur orðið á mannréttindum og frelsi, oft í skjóli heimsfaraldurs, og gera atlögu að grundvallarþáttum alþjóðakerfisins og alþjóðalögum sem byggst hafa upp frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Árangursrík störf Íslands á vettvangi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna á kjörtímabilinu hafa vakið heimsathygli. Sjálfur hef ég lagt áherslu á að mæta til leiks í ráðherraviku ráðsins til að hvetja aðildarríki til að ganga á undan með góðu fordæmi. Um þessar mundir veitir Ísland ríkjahópi um stöðu mannréttinda í Íran forystu og áfram mun Ísland fylgja eftir þeim málum sem við áttum nokkurt frumkvæði að í ráðinu, þ.e. málefnum Filippseyja og Sádi-Arabíu. Í samstarfi við Norðurlöndin og bandalagsríki höfum við sömuleiðis beitt okkur með virkum hætti í kjölfar meingallaðra kosninga í Belarús, tilræðis gegn stjórnarandstæðingnum Navalní í Rússlandi og framgöngu kínverskra stjórnvalda í mannréttindamálum. Ísland hefur einnig látið til sín taka í þágu fjölmiðlafrelsis og borgaralegra réttinda og beitir sér ávallt fyrir réttindum hinsegin fólks, kynjajafnrétti og réttindum barnsins í fjölþjóðlegu samstarfi. Þessir þættir vega þungt í allri þróunarsamvinnu Íslands og munu áfram varða veginn í því forystuhlutverki sem okkur er falið á vettvangi Evrópuráðsins og annarra alþjóðastofnana.
Það verður ekki of oft sagt að fámenn herlaus ríki eins og Ísland eiga mikið undir því að alþjóðalög séu virt og að áfram ríki fjölþjóðleg sátt um þau gildi sem okkur eru kærust. Til að auka áhrif Íslands innan alþjóðastofnana hefur verið lögð áhersla á að fjölga íslensku starfsfólki á vettvangi þeirra. Á næstunni verða auglýstar ungliðastöður hjá þremur alþjóðastofnunum og bættir verkferlar og stuðningur við íslenska sérfræðinga sem leitast eftir starfa á þessum vettvangi.
Virðulegi forseti. Ég hef lagt á það áherslu að eitt helsta verkefni stjórnvalda á tímum kórónuveirunnar sé að takmarka áhrif heimsfaraldursins eins og kostur er fyrir almenning og efnahagslífið og leita um leið tækifæra fyrir land og þjóð. Vorið 2020 skipaði ég starfshóp til að móta tillögur að því hvernig utanríkisþjónustan gæti betur stutt við atvinnulífið við þessar aðstæður. Á grundvelli skýrslu starfshópsins, Saman á útivelli, var sérstök viðskiptavakt sett á laggirnar í október 2020. Hún er byggð á vel heppnaðri fyrirmynd borgaraþjónustunnar og er dæmi um hvernig stjórnsýslan getur lagað sig að breyttum aðstæðum til hagsbóta fyrir íslensk fyrirtæki og einstaklinga. Komi upp brýn vandamál tengd viðskiptum sem kalla á aðkomu stjórnvalda er hægt að komast í samband við starfsfólk utanríkisþjónustunnar hvenær sem er sólarhringsins árið um kring. Annað dæmi um hvernig vörn hefur verið snúið í sókn er Heimstorgið, sem sett var á fót í samstarfi utanríkisráðuneytisins og Íslandsstofu og tók formlega til starfa nú í mars. Íslandsstofa hefur umsjón með rekstri Heimstorgsins en í baklandi þess eru sérfræðingar utanríkisráðuneytisins um atvinnulíf og þróunarsamvinnu, viðskiptaþjónustu, Uppbyggingarsjóð EES, auk annarra fjölþjóðlegra samstarfssjóða sem íslensk fyrirtæki hafa aðgang að. Heimstorgið á að brúa bilið á milli atvinnulífs og stjórnvalda. Þannig er hlutverk þess að miðla upplýsingum til íslenskra fyrirtækja um möguleika á stuðningi við atvinnuþróunarverkefni í þróunarlöndum og víðar. Þá má einnig nefna að Samstarfssjóður við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna er kominn á fullan skrið. Sjóðurinn styrkir starfsemi íslenskra fyrirtækja í þróunarríkjunum sem stuðla að hagsæld í anda heimsmarkmiðs 8, um mannsæmandi atvinnu og sjálfbæran hagvöxt. Með sjóðnum er undirstrikað að aðkoma einkaaðila að þróunarsamvinnu er ekki bara æskileg heldur nauðsynleg forsenda þess að slík samvinna beri tilætlaðan árangur.
Virðulegi forseti. Eina leiðin út úr yfirstandandi þrengingum vegna Covid-19 er aukin verðmætasköpun og aukin útflutningsverðmæti. Fyrir þjóð sem á allt sitt undir farsælum utanríkisviðskiptum skiptir öllu að tryggja íslenskum fyrirtækjum bestu mögulegu viðskiptakjör og sem greiðastan aðgang að alþjóðamörkuðum. Árið 2020 var hálf öld liðin frá því að Ísland gekk í EFTA og 60 ár frá því að stofnunin var sett á fót. EFTA-aðildin er ein af grunnstoðum utanríkisviðskiptastefnunnar og hefur átt mikilvægan þátt í að tryggja hagsæld hér á landi. Í krafti hennar hefur Ísland gert 29 samninga við 40 ríki og landsvæði. Með því að standa utan við Evrópusambandið nýtur Ísland viðskiptafrelsis og getur gerst sína eigin fríverslunarsamninga, annaðhvort upp á eigin spýtur eða í samfloti með öðrum ríkjum. Þannig var Ísland fyrst Evrópuríkja til að gera fríverslunarsamning við Kína og Ísland hefur nú gert fríverslunarsamninga við 74 lönd sem alls telja 2,9 milljarða eða rúmlega þriðjung mannkyns. Bandaríkin eru áfram stærsta einstaka viðskiptaland Íslands, hvort sem horft er til vöru- og þjónustuviðskipta eða beinna fjárfestinga á Íslandi. Ég hef lagt sérstaka áherslu á að rækta viðskiptasamband ríkjanna, m.a. með samráði við utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna og embætti viðskiptafulltrúa Bandaríkjaforseta. Heimsfaraldurinn hefur vissulega sett strik í reikninginn en undanfarið hafa efnahags- og viðskiptamál milli ríkjanna verið rædd með formlegum hætti á breiðum grundvelli með það að markmiði að undirbúa jarðveginn fyrir mögulegar fríverslunarviðræður í náinni framtíð. Á eftir Bandaríkjunum er Bretland næstmikilvægasta einstaka viðskiptaland Íslands. Bráðabirgðafríverslunarsamningur Íslands og Noregs við Bretland, í kjölfar útgöngu úr ESB, gekk í gildi 1. janúar 2021. Meginmarkmið hans er að viðhalda núverandi tollkjörum í vöruviðskiptum milli ríkjanna á grundvelli EES-samningsins og annarra tengdra viðskiptasamninga. Samningunum er ætlað að brúa bilið uns nýr víðtækur fríverslunarsamningur milli ríkjanna kemst á. Unnið er að því að ljúka viðræðum EFTA-ríkjanna innan EES við Bretland um fríverslunarsamning eins fljótt og auðið er. Ljóst er að framtíðarsamningur við Bretland er afar mikilvægur fyrir íslenska útflutningshagsmuni og því skiptir miklu máli að vel takist til.
Virðulegi forseti. Þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland er það leiðarljós sem starfað er eftir í varnar- og öryggismálum. Þar kemur fram að grundvallarforsenda stefnunnar sé staða Íslands sem fámennrar eyþjóðar sem hvorki hafi burði né vilja til að ráða yfir her og tryggi öryggi sitt og varnir með virkri samvinnu við önnur ríki og innan alþjóðastofnana. Hornsteinar öryggis og varna Íslands eru annars vegar aðild að Atlantshafsbandalaginu, þar sem Ísland var í hópi 12 stofnríkja árið 1949, og hins vegar varnarsamningur við Bandaríkin, en í gær voru 70 ár liðin frá undirritun hans. Ísland fer ekki varhluta af þeim breytingum sem orðið hafa í öryggismálum á heimsvísu á undanförnum árum. Það einkennist af auknum óstöðugleika og ófyrirsjáanleika og spennu í alþjóðasamstarfi. Við þessar aðstæður hefur varnarviðbúnaður á Íslandi aukið vægi vegna legu landsins í Norður-Atlantshafi. Fjölþættar ógnir skipa einnig aukinn sess í öryggisumhverfinu og samráð vestrænna ríkja um hvernig bregðast skuli við breyttum aðstæðum í öryggismálum. Viðbrögð Íslands við breyttu öryggisumhverfi felast m.a. í því að tryggja viðbúnað og gistiríkjastuðning við liðssveitir Bandaríkjanna og annarra ríkja Atlantshafsbandalagsins sem hafa viðkomu á öryggissvæðinu, en líka í aukinni þátttöku í samstarfsverkefnum. Þá fela viðbrögðin einnig í sér þéttara samráð á alþjóðavettvangi í hópi bandalags- og samstarfsríkja og ráðstafanir gegn fjölþáttaógnum. Í utanríkisráðuneytinu hefur verið sett á fót ný deild um þetta málefni. Með því er lögð áhersla á uppbyggingu varna og styrkingu innviða sem hluta af þjóðaröryggi og öryggis- og varnarskuldbindingum Íslands. Með sterkari innviði og varnir, viðbragðsgetu og viðnámsþol, samhliða skýrri stefnumótun, verður Ísland í stakk búið til að takast á við þá skammtímaógn sem fjölþáttaógnir eru. Framlag Íslands á vettvangi Atlantshafsbandalagsins og í tvíhliða varnarsamstarfi við Bandaríkin felst fyrst og fremst í þátttöku í loftrýmiseftirliti, loftrýmisgæslu og æfingum bandalagsins og bandalagsríkja, gistiríkjastuðningi og í því að tryggja öruggan rekstur varnarmannvirkja og búnaðar. Ísland sinnir rekstri og viðhaldi þeirra 140 varnarmannvirkja sem er að finna á skilgreindum öryggissvæðum. Viðhald og rekstur varnarmannvirkja og búnaðar er grundvallarþáttur í þjóðaröryggisstefnu Íslands þar sem kveðið er skýrt á um að tryggt sé að í landinu séu til staðar varnarmannvirki, búnaður, geta og sérfræðiþekking til að mæta þeim áskorunum sem Ísland stendur frammi fyrir í öryggis- og varnarmálum og til að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar Íslands. Þessi misserin standa yfir ýmis nauðsynleg viðhalds- og endurbótaverkefni á öryggissvæðinu. Verkefni þessi eru að mestu leyti kostuð af Atlantshafsbandalaginu og Bandaríkjunum.
Virðulegi forseti. Síðastliðin misseri hafa verið bæði krefjandi og um margt þungbær en um leið sýnt fram á þolgæði þjóðarinnar og styrk. Ég er stoltur af árangri utanríkisþjónustunnar við að styðja íslenskt atvinnulíf og gæta hagsmuna borgaranna á slíkum óvissutímum. Nú þegar við sjáum ljósið við enda ganganna stendur Ísland sterkt að vígi í samfélagi þjóðanna. Framtíðin er björt.