151. löggjafarþing — 92. fundur,  10. maí 2021.

veiðigjöld og arður í sjávarútvegi.

[13:04]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem er auðvitað um ákveðin grundvallarmál. Eins og hv. þingmaður þekkir þá höfum við á þeim tíma sem hann vitnaði til breytt fyrirkomulagi veiðigjalda alloft. Ég tel að það hafi verið skref til framfara þegar veiðigjaldinu var breytt síðast að því leyti til að það var afkomutengt og eins og hv. þingmaður veit er reiknað með því að sú fjárhæð verði töluvert hærri á þessu ári en því síðasta vegna þessarar afkomutengingar. Það breytir því ekki að við þurfum að ræða þessi grundvallaratriði og ég tel að það sé margt sem þurfi frekari umræðu. Ég vil nefna hámarkshlutdeild fyrirtækja sem hefur verið hér til umræðu og hvort við teljum ásættanlegt það þak sem er á hlut einstakra fyrirtækja þegar kemur að aflaheimildum og sömuleiðis skilgreiningu á tengdum aðilum sem við erum hér að ræða á vettvangi þingsins. Þetta er eitt af þeim grundvallaratriðum sem þarf að ræða og var raunar samþykkt sérstaklega í sjávarútvegsstefnu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á landsfundi. Það sem skiptir máli er að við fylgjum þessum ákvæðum bæði hart eftir en tökum líka umræðuna um það hver við teljum að hámarkshlutdeild eigi að vera. Síðan er það veiðigjaldið sjálft sem við getum rætt og í þriðja lagi vil ég nefna hversu hátt hlutfall það er sem við viljum hafa í þeim hluta fiskveiðistjórnarkerfisins sem við höfum kallað byggðatengdar aðgerðir og stendur núna í 5,3% en landsfundur minnar hreyfingar samþykkti að ætti að fara hækkandi í skrefum. Í fjórða lagi var samþykkt í stefnu okkar að fremur ætti að horfa til nýtingar leyfa en núverandi fyrirkomulags og ráðast í þá umbreytingu, sem ætti ekki að koma hv. þingmanni á óvart þar sem við höfum auðvitað áður mælt fyrir slíkum breytingum.