staða sjávarútvegsins.
Virðulegi forseti. Já, þetta er ekki í fyrsta sinn og líklega ekki það síðasta sem ég kem upp í pontu til að ræða stöðu sjávarútvegsins á Íslandi og áhrif hans á íslenskt samfélag. Það skiptir okkur í Viðreisn auðvitað gríðarlega miklu máli að traust ríki um greinina þannig að hún fái áfram að vaxa og dafna á forsendum gegnsæis og skýrra leikreglna en líka á forsendum sáttar og réttlætis við þjóðina.
Umræða síðustu vikna varðandi eignarhald, ítök, hagsmunaaðila, skort á gagnsæi og vantraust almennings til stjórnvalda í þessum efnum hlýtur að vera rík brýning fyrir hæstv. forsætisráðherra að setja fram skýr og ótvíræð skilaboð um auðlindaákvæðið sem eitthvert bit er í, ekki einhverja sýndarmennsku. Þá er ég að undirstrika að við þurfum að hafa ótvíræða tímabindingu.
Norsk stjórnvöld, færeysk stjórnvöld, namibísk stjórnvöld eru skýr um það núna að verja almannahagsmuni með viðbrögðum sínum þegar kemur að sjávarútvegi. Það má eðlilega spyrja: Hvað hér? Hvað er gert hér? Sumir spyrja: Af hverju er meðvirknin svona mikil hér heima? Hvaða mynd er að teiknast upp á Íslandi? Hæstv. fjármálaráðherra segist engar áhyggjur hafa af þessu enda hugnast hvorki honum né flokknum hans neitt annað en núverandi ástand. En mig langar að spyrja forsætisráðherra: Hefur hún áhyggjur af þessari þróun? Það blasir við hversu nauðsynlegt það er einmitt núna að sólunda ekki þessu tækifæri, að festa rækilega í sessi eignarhald þjóðarinnar yfir auðlindinni og koma í veg fyrir enn frekari ítök hagsmunaafla sem ráða hér of miklu í samfélagi okkar eins og bent hefur verið á af m.a. af seðlabankastjóra. Tímabinding réttindaaðgangsins að auðlindinni með ótvíræðum hætti er algjört lykilatriði. Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. ráðherra: Mun hún beita sér fyrir því að lagt verði fram auðlindaákvæði sem er ótvírætt (Forseti hringir.) í þessa veru? Mig langar líka að fá viðhorf hennar til þess hvað það er sem Norðmenn sjá, Namibíumenn, Færeyingar en við ekki.