151. löggjafarþing — 92. fundur,  10. maí 2021.

staða sjávarútvegsins.

[13:11]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Það er kannski tvennt sem hv. þingmaður gerir hér að umtalsefni og ég ætla að byrja á því sem varðar Noreg nú síðast, en þar eru heimildir fyrir erlendu eignarhaldi í sjávarútvegi. Eins og kunnugt er lögðu Færeyingar fram og samþykktu frumvarp til laga um að takmarka erlent eignarhald í sjávarútvegi, sem er takmarkað á Íslandi. Bara til upplýsingar fyrir hv. þingmann þá kom einmitt sjávarútvegsráðherra Færeyinga á þeim tíma hingað til lands til að kynna hugmyndir sínar og fá innblástur frá Íslandi þar sem slíkar fjárfestingar erlendra aðila eru takmarkaðar. Nú hefur það komið fram hjá norska sjávarútvegsráðherranum að hann hafi grunsemdir um, eða að uppi séu grunsemdir um, að erlendir aðilar, þar með talið íslenskt fyrirtæki, séu að sniðganga lög sem gera ráð fyrir því að skip með úthlutuðum kvóta verði að vera a.m.k. 60% í eigu Norðmanna. Ég ætla að segja það hér, að ég skil mætavel ef ráðherrann í Noregi ætlar að ganga fram og skerpa á þessum lögum og reglum. Eðlilega vilja Norðmenn ekki að slíkar reglur séu sniðgengnar og slík lög. Þetta snýst um hagsæld þeirra og sjávarútveginn sem þeir stunda svo að ég hef fullan skilning á því, alveg eins og ég hafði mikinn skilning á því að Færeyingar vildu horfa til íslenska fordæmisins þegar kæmi að erlendu eignarhaldi. Það er nú kannski eitt mál.

Hvað auðlindaákvæðið varðar þá kemur það mjög skýrt fram, ef það yrði samþykkt í þeirri mynd sem ég setti það fram, að þar er kveðið skýrt á um að þessar heimildir verði ekki afhentar varanlega. Í greinargerð er kveðið á um að það merki að þær séu þá annaðhvort tímabundnar eða uppsegjanlegar. Hv. þingmaður hefur talað fyrir því að þarna eigi eingöngu að tala um tímabindingu heimilda. Ég hef bent á að þarna geti verið ólík sjónarmið milli ólíkra auðlinda og mér finnist mikilvægt að slíkt ákvæði sé almennt, eigi við um allar auðlindir. Í öllu falli held ég að við hv. þingmaður séum sammála um að mikil þörf sé á því að Alþingi svari ákalli almennings til margra ára um slíkt ákvæði í stjórnarskrá.