151. löggjafarþing — 92. fundur, 10. maí 2021.
sérhæfð sérdeild fyrir einhverf börn.
Virðulegur forseti. Það er mjög brýnt að tekið sé á svona málum með festu. Viðbrögð borgaryfirvalda eru til skoðunar, hvernig málið er til komið, og hver staðan er á þessum málaflokki hjá Reykjavíkurborg. Við hugum að því að fara enn frekar yfir þetta mál af því það er brýnt, eins og hv. þingmaður nefnir. Við viljum tryggja að í menntakerfinu okkar geti allir fundið sig og mjög jákvætt að hv. þingmaður nefni þetta mál og brýni okkur til góðra verka.