151. löggjafarþing — 92. fundur,  10. maí 2021.

fjárheimildir til eftirlits gegn spillingu.

[13:30]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Þegar Samherjamálið hófst biðu 100 mál rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara, þar af um 60 skattamál. Vegna þessa bað héraðssaksóknari um aukið fjármagn fyrir sex stöðugildum til að ná að sinna verkefnum embættisins í nóvember 2019. Þeirri beiðni var hafnað í fjárlagavinnu fyrir árið 2020. Starfsfólki á rannsóknarsviði héraðssaksóknara fjölgaði þó um sex stöðugildi um mitt ár 2020. Það er í sjálfu sér áhugavert að það sé hægt þegar engin fjárheimild er fyrir því, en samkvæmt heimildum er um að ræða 30 milljónir úr dómsmálaráðuneytinu sem var einhvern veginn hægt að skrapa saman. Þrátt fyrir þetta er staða verkefna þó enn svipuð og áður, verri ef tekið er tillit til aukinna verkefna vegna nýlegra laga. Í víðara samhengi sjáum við svo erindi umboðsmanns Alþingis mörg ár aftur í tímann um auknar fjárheimildir til að sinna frumkvæðisrannsóknum og meiri hluta þingsins sem hafnar þeim beiðnum. Það er líka skortur á fjármagni hjá Samkeppniseftirlitinu, Fiskistofu, Ríkisendurskoðun og Persónuvernd til að sinna frumkvæðisrannsóknum og örugglega hjá fleiri stofnunum. Þetta voru bara þær stofnanir sem var auðvelt að finna heimildir fyrir um slíkan skort.

Spurningin er því: Ef ásýnd stjórnmálanna er lykilatriði, þegar kemur að trausti, hvernig er það traustvekjandi að sjá áþreifanlegar aðgerðir í Noregi, Færeyjum og Namibíu vegna Samherjamálsins, en hérna höfum við höfnun á beiðni um auknar fjárheimildir og svelti eftirlitsstofnana sem eiga að vinna gegn spillingu? Ég spyr því hæstv. ráðherra: Hvað erum við að gera til að sýna það í verki að við erum að ganga til höfuðs spillingu á Íslandi? Í verki, forseti, þar sem við fjármögnum það eftirlit sem raunverulega nær árangri. Það er nefnilega ekki nóg að setja lög ef ekki er hægt að framfylgja þeim vegna þess að það vantar fjárheimildir.