fjárheimildir til eftirlits gegn spillingu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Bara svo að það sé rifjað upp þá fékk héraðssaksóknari þær fjárheimildir sem hann óskaði eftir, ekki með afgreiðslu hér í þinginu heldur af varasjóðum dómsmálaráðuneytis, sem er það sem lög um opinber fjármál ganga út á, þ.e. einmitt að hægt sé að nýta þá fjármuni sem eru til staðar í varasjóðum ef um er að ræða einhvers konar tímabundið álag. Ég ætla að segja það, herra forseti, því að mér finnst ekki gott ef gefið er í skyn hér að ekki sé verið að sinna þessari rannsókn af fullri alvöru, að það er alls ekki mín sannfæring. Mín sannfæring er sú að héraðssaksóknari sé svo sannarlega að sinna þessari rannsókn af fullri alvöru og hann hefur skýrar yfirlýsingar stjórnvalda um að hann fái þá fjármuni sem hann þarf til að ljúka henni. Ég hef þannig mikla trú á þessu embætti. Við höfum fylgst með því í fréttum þar sem tekist hefur verið á, m.a. fyrir dómstólum, um aðgang að gögnum og við vitum að það er fullur gangur í þessari rannsókn. Nú síðast lá það fyrir að héraðssaksóknari hefði fengið úrskurð um að fá aðgang að þeim gögnum sem óskað var eftir eftir einhvers konar samtöl, rekistefnu, fyrir dómstólum. Mér finnst mikilvægt að segja að ég hef fulla trú á því að embættið sé að sinna þessu af atorku, en auðvitað tekur þetta tíma.
Hvað varðar eftirlitsstofnanirnar almennt vil ég nefna þá eftirlitsstofnun sem undir mig heyrir í sameinuðum Seðlabanka og Fjármálaeftirliti. Sú sameining hefur tekist vel. Nú stendur til að skipa nefnd sem tekur út hvernig hún hefur tekist, eins og samþykkt var hér af hálfu Alþingis. Við sjáum það hins vegar að traust almennings, af því að hv. þingmaður ræðir það, hefur aukist mjög á stofnuninni sem ég held að sé til marks um að stofnunin er að sinna hlutverki sínu í þágu almennings af fullri alvöru. Þá er ég auðvitað að vitna til bæði Seðlabanka og Fjármálaeftirlits sem runnu þarna saman í eina stofnun. Við höfum þarna mjög góð dæmi um stofnanir sem njóta mikils trausts og eru að sinna verkum sínum af heilindum og af alvöru.