151. löggjafarþing — 92. fundur,  10. maí 2021.

um fundarstjórn.

[13:48]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Þann 14. desember var samþykkt skýrslubeiðni með 58 samhljóða atkvæðum um stöðu biðlista í Covid-faraldrinum. Miðað við frí og annað sem hefur verið hefði sú skýrsla átt að liggja fyrir í síðasta lagi 15. mars eða fyrir tveimur mánuðum síðan. Ekkert hefur heyrst, ekki hefur verið beðið um frest, það heyrist ekki múkk. Þess vegna vil ég biðja hæstv. forseta að athuga hvar skýrslubeiðnin er stödd og hvort hún sé ekki að skila sér inn í umræðuna. Tveir mánuðir fram yfir án þess að nokkurt gerist er einum of mikið af því góða.