151. löggjafarþing — 92. fundur,  10. maí 2021.

Ný þýðing á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

568. mál
[15:06]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin og ég get ekki annað en verið innilega sammála honum. Ef þetta er ekki hækja, af hverju er þá ekki, á sama tíma og við erum að leggja þetta fram, verið að lögfesta samninginn? Það hefði verið lítið mál að vera á nákvæmlega sama stað með það. Hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir sagði hér áðan að það þyrfti að þýða samninginn rétt til að geta lögfest hann. Þá segir sig sjálft að ef það var tilgangurinn hefði lögfestingin átt að koma inn á sama tíma. Þá værum við að ganga frá báðum þessum málum á sama tíma. Þessi skýring getur ekki staðist vegna þess að það er bara verið að draga málið. Einhverra hluta vegna vilja stjórnarflokkarnir ekki að þetta mál klárist, það er alveg greinilegt, alveg skýrt.