breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .
Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru. Þetta er tvíþætt. Með frumvarpinu er lagt til að lögaðilum og einstaklingum í atvinnurekstri verði heimilt að dreifa greiðslum staðgreiðslu- og tryggingagjalds sem frestað var á árinu 2020 samkvæmt ákvæði til bráðabirgða og að þeir hafi heimild til þess að dreifa þeim greiðslum í allt að 48 mánuði. Þá er einnig lagt til að heimild til úttektar á séreignarsparnaði taki gildi að nýju. Þetta er úttekt án skilyrða en bundin því að fullur skattur sé greiddur.
Eins og kemur fram í nefndarálitinu bárust nefndinni ábendingar, eða réttara sagt óskir um önnur atriði sem tengjast ekki þessu frumvarpi. Við þeim óskum var ekki hægt að verða, a.m.k. að sinni. Skilyrði fyrir greiðsludreifingu er að aðili sé á umsóknardegi í skilum með önnur opinber gjöld, skatta og skattsektir. Samkvæmt frumvarpinu er miðað við að þetta sé á eindaga 31. desember 2020.
Í umsögn Skattsins er hins vegar bent á að betur fari á því að skilyrðið verði í samræmi við efnislega sambærileg skilyrði fyrir frestun staðgreiðslu- og tryggingagjalds samkvæmt lögum um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 25/2020. Meiri hlutinn tekur undir þá ábendingu og leggur til að miðað verði við að aðili sé í skilum með önnur opinber gjöld, skatta og skattsektir á eindaga 31. desember 2019.
Þá eru einnig lagðar til breytingar þess efnis að verði bú aðila sem nýtur heimildar til greiðsludreifingar tekið til gjaldþrotaskipta eða aðila slitið á tímabili greiðsludreifingarinnar, þ.e. þessa 48 mánuði, falli kröfur á gjalddaga á úrskurðardegi um gjaldþrotaskipti eða við afskráningu. Með þessu fylgja síðan nauðsynlegar breytingartillögur.
Hv. þm. Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar undir nefndarálitið með fyrirvara og það gerir hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson einnig, með efnislegum fyrirvara.
Undir nefndarálitið rita sá er hér stendur, Óli Björn Kárason, og hv. þingmenn Jón Steindór Valdimarsson, Brynjar Níelsson, Bryndís Haraldsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, með fyrirvara, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, með fyrirvara, og Hjálmar Bogi Hafliðason.