breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin og ég viðurkenni að ég sé að ég var að rugla saman frumvörpum. En út frá þessu mun ég auðvitað taka þetta fyrir þegar frumvarpið kemur til umræðu. Það sem er kannski furðulegast í þessu er að til þess að geta nýtt sér séreignarsparnaðinn mánaðarlega inn á höfuðstólinn, skattlaust, þarft maður að fá hann mánaðarlega. Svo hafa örorkulífeyrisþegar dottið út úr vinnu og ekki fengið þessa mánaðarlegu greiðslu en samt átt séreignarsparnað. Þeir geta þá ekki nýtt sér þann sparnað mánaðarlega þó að þeir myndu vilja nýta sér hann til að fá sömu tækifæri og hinir til að fá þetta skattlaust. Það var fyrirspurnin og ég vona það verði tekið til greina í meðförum málsins.