auknar rannsóknir á þremur nytjastofnum í sjó við landið.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu. Hér er til umræðu viðkoma og rannsóknir á grásleppu, sæbjúgum og humri. Mig langar að nefna grásleppuna. Veiðar á henni hafa verið í þessu formi frá stofnstærðarrannsókn 2012, eitthvað svoleiðis. Sitt sýndist hverjum um þær breytingar að setja grásleppuna í þetta form, sem meðafli í troll í togararalli. Þó verður að viðurkennast að ráðgjöf Hafró var mun stærri núna en undanfarin ár og það sannast að veiðin hefur aldrei verið eins mikil og núna. Því er eitthvað að marka þetta þó að ugglaust mætti gera miklu betur.
Mig langar til að nota seinni mínútu mína í að tala um fisktegund sem er ekki á dagskrá. Það er lúðan. Bein veiði á henni var bönnuð 2012, eitthvað svoleiðis, og sett í reglugerð hvernig ætti að umgangast hana sem meðafla í ýmis veiðarfæri, þar á meðal línu, net og troll. Ég hef lagt það til, af því að það er algerlega bannað að landa henni sem meðafla á línu, að leyft yrði að landa henni sem meðafla til að hjálpa Hafrannsóknastofnun að sjá viðkomu hennar og vöxt. Hún hefur aukist gríðarlega sem meðafli, alveg gríðarlega. Hafrannsóknastofnun kvartar yfir því að ekki sé til fjármagn til að rannsaka og annað slíkt. Ef slík löndun væri leyfð myndi það verða til þess að það sæist á einhvern hátt hver viðkoma lúðunnar er. Ég er alveg öruggur á því að stór hluti þess (Forseti hringir.) sem er sleppt aftur í sjóinn drepst.