auknar rannsóknir á þremur nytjastofnum í sjó við landið.
Virðulegi forseti. Þetta er ánægjuleg umræða og allt það. Hæstv. ráðherra fór stuttlega yfir það sem er í gangi í sambandi við rannsóknir hjá Hafrannsóknastofnun í tengslum við þær tegundir sem hér er spurt um. Hv. þm. Sigurður Páll Jónsson nefndi lúðuna sérstaklega, og þótti mér ræða hans athyglisverð. Ég verð að segja að mér finnst í þessari umræðu ákveðinn skortur á umræðu um loftslagsbreytingar og þau áhrif sem þær munu hafa á hafið og hafa nú þegar á hafið. Mér finnst umræðan einkennast mikið af spurningunni um ofveiði, eðlilega. Það er jú þess vegna sem við erum með kvótakerfi, þ.e. til að forðast ofveiði. En við stöndum frammi fyrir því að næstu áratugina verða miklar breytingar á hafinu, sem og á öðrum vistkerfum jarðarinnar. Sumt af því þekkjum við eitthvað, sumt þekkjum við ekki neitt og annað getum við getið okkur til um út frá líkindareikningi. Það eru þættir eins og súrnun sjávar, hækkun hitastigs, breytt fæðuúrval fyrir tegundirnar og þess háttar, fyrir utan auðvitað tækniframfarir í veiðum.
Ég velti fyrir mér hvort einnig hefði mátt spyrja, og ég varpa því fram til hæstv. ráðherra í þessari ræðu, hvort í rannsóknum sem stuðst er við við veiðiráðgjöf í framtíðinni, næstu áratugi, þurfi ekki að fara að leggja sérstaka áherslu á það við hverju við getum búist eftir áratug, eða tvo eða þrjá eða fjóra, vegna loftslagsbreytinga og þeirra áhrifa sem við vitum að þær munu hafa á lífríki sjávarins. Ég hygg nefnilega að þótt við höfum alltaf þurft að rannsaka þessar tegundir, alveg óháð loftslagsbreytingum, sé núna meiri ástæða til að gefa í þegar kemur að rannsóknum. Það snýst ekki bara um ólíka hagsmuni í tengslum við spurninguna heldur líka þá staðreynd að hér etjum við kappi við sameiginlegan óvin sem loftslagsbreytingar eru.