auknar rannsóknir á þremur nytjastofnum í sjó við landið.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir athyglisverða umræðu sem einmitt þrýstir okkur sem hér erum inni og mótum stjórnsýsluna og lagaumhverfið til þess að vanda okkur nákvæmlega á þessum tímum. Ég vil taka heils hugar undir þau orð sem hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson lét falla áðan um loftslagsbreytingar. Um leið er það undirliggjandi tónn hjá hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni varðandi mikilvægi þess að við vöndum okkur við rannsóknir, að við styðjum við helstu vísindastofnanir okkar, sem að mínu mati er Hafrannsóknastofnun í þessu tilviki og svo er hægt að tala um aðrar vísindastofnanir eins og Háskóla Íslands. Ég tel lykilatriði að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að auka sjálfstæði Hafró, líka frá hagsmunaaðilum, það er náttúrlega gömul saga og ný, þannig að hún geti fengið sjálfstæði til rannsókna á fjárhagslegum grunni, einnig til að fara í skoðun á vistkerfi sjávar, hvaða áhrif loftslagsbreytingar hafa, því að þetta hefur gríðarleg áhrif til skemmri og lengri tíma. Þetta hefur líka áhrif á trúverðugleika okkar sem fiskveiðiþjóðar. Það er það mikilvæga. Þrátt fyrir að við hæstv. sjávarútvegsráðherra deilum um hvað sé eðlilegt gjald, deilum um hvert auðlindaákvæðið í stjórnarskrá eigi að vera, þá erum við sammála um að við eigum að halda áfram á þeirri farsælu leið sem að mínu mati var mótuð fyrir nokkuð löngu síðan, þ.e. að byggja á sjálfbærum veiðum sem styðjast við vísindalega ráðgjöf. Þetta er rauði þráðurinn í fiskveiðistjórn okkar. Við megum ekki fara að slaka á þeim þræði eða jafnvel klippa í sundur og stagbæta hann síðan eftir á.
Varðandi humarinn, sæbjúgun, hrognkelsin, grásleppuna þá eru ákveðin teikn á lofti sem augljóslega segja okkur að við höfum ekki stutt nægilega við Hafrannsóknastofnun og beint sjónum okkar nægilega að því hvernig við getum byggt upp til skemmri og lengri tíma í þessu. (Forseti hringir.) Þess vegna vil ég segja að ég styð ráðherrann í þeirri viðleitni sinni að fara yfir sviðið. Hann hefur komið (Forseti hringir.) með frumvarp hingað inn sem ég held að sé allrar athygli vert. En lykilatriðið er að við erum þó (Forseti hringir.) að reyna að takast á við þær áskoranir sem við okkur blasa og þær eru nokkuð alvarlegar þegar kemur að þessu.