auknar rannsóknir á þremur nytjastofnum í sjó við landið.
Herra forseti. Ég biðst afsökunar á því að hafa farið með rangar upplýsingar um fjölda fiska í togararalli þegar kom að hrognkelsunum, ég hef bara fengið rangar upplýsingar um það. En það er auðvitað ánægjulegt ef góð aflabrögð eru fram undan og hafa verið. Það gæti kannski skrifast á hlýnun sjávar að einhverju leyti. Við verðum auðvitað að haga ráðgjöfinni í samræmi við aflabrögð og annað og það er nægt tilefni til frekari rannsókna á þessum sviðum. Hvað humarinn varðar þá lofar ný rannsóknartækni góðu, en ég ætla samt sem áður að halda því fram að um ofveiði hafi verið að ræða, einkum vegna þess að verið er að breyta um veiðiaðferð og taka mjög stór og þung troll í notkun. Samdrátturinn í sæbjúgum bendir til ofveiði og þar verður að stilla veiðinni í hóf. 2.000 tonn eru jafnvel of mikið. Hver veit það? Það vantar verulega í þær rannsóknir.
Loftslagsbreytingar. Ég ræddi það einmitt í inngangsræðu minni hversu mikilvægar þær eru og umhverfisbreytingar sem þeim fylgja. Það er jú þannig að það eru oftast samþættar orsakir sem valda því að fiskstofnar eða aðrir dýrastofnar í náttúrunni hrynja skyndilega og við þurfum að gæta þess að einblína ekki á eitthvað eitt heldur komast að því hvað þarna er, hvort sem er hvað varðar humarinn eða sæbjúgun.
Niðurstaða mín er einfaldlega sú að við megum ekki slaka á, heldur tryggja nægt fé, tæki og mannafla til öflugri sjávardýra- og umhverfisrannsókna en verið hefur. Ég vil að við aukum við þær og ég vil líka að við sjáum til þess að sjálfbærni sé ekki bara hugtak á góðum dögum heldur sé hún raunverulega bjart leiðarljós í öllum náttúrunytjum á Íslandi, ekki síst í sjávarnytjum.