151. löggjafarþing — 93. fundur,  11. maí 2021.

barnalög.

204. mál
[14:31]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Herra forseti. Þetta er fjórða frumvarpið sem við erum að samþykkja á þessu þingi sem snýr að kynrænu sjálfræði og réttindum fólks með kynhlutlausa skráningu, sem breytt hefur kynskráningu sinni. Þetta er gríðarlegt fagnaðarefni og við höfum verið að gera ofsalega mikilvægar breytingar til að tryggja mannréttindi í okkar samfélagi. Ég fagna því svo sannarlega að hér sé atkvæðataflan algræn og við séum þar með búin að ljúka fjórum frumvörpum sem lúta að þessum málaflokki.