151. löggjafarþing — 93. fundur, 11. maí 2021.
barnalög.
204. mál
Herra forseti. Ég segi já við þessu en mig langaði bara aftur að taka fram, eins og ég gerði hér síðast, að fara verður fram heildarendurskoðun á þeim lagabálkum er varða persónurétt. Það er ekki nóg að uppfæra einungis orðalagið heldur þarf að líta á þetta allt heildstætt þannig að réttindi fyrir öll haldist inni í lögunum og nái yfir okkur öll.