151. löggjafarþing — 93. fundur,  11. maí 2021.

lögreglulög o.fl.

365. mál
[14:33]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég hef átt í bölvuðum vandræðum með að gera upp hug minn um það hvernig ég ætla að greiða atkvæði við lokaafgreiðslu þessa máls. Eins og frægt er orðið er ég mikill talsmaður þess að hafa sérstakt, ytra, sjálfstætt og gott eftirlit með störfum og starfsháttum lögreglu. Það er að hluta til markmið þessa frumvarps að auka það litla eftirlit sem er til staðar. Mér er skapi næst að sitja hjá við afgreiðslu málsins vegna þess að mér finnst ekki nóg að gert. Mér finnst málið því miður einkennast af því viðhorfi hérlendis að lögreglunni sé í meginatriðum einfaldlega treystandi. Það er ekki spurningin, virðulegi forseti, heldur hvers eðlis stofnunin er. Hún er valdastofnun sem fer með það hlutverk að beita fólk líkamlegu valdi eftir þörfum. Það er mikið vald og þarf mikið eftirlit með því.

Ég ætla að splæsa grænu á þetta frumvarp í þetta sinn en ég vildi koma hér upp og lýsa þessum fyrirvara mínum og þeirri skoðun minni að halda verði áfram að auka eftirlit með starfsemi lögreglu.