lögreglulög o.fl.
Forseti. Ég vil gera grein fyrir því af hverju ég ætla að sitja hjá í atkvæðagreiðslu um þetta frumvarp. Ég er sammála hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni um að það sé virkilega gott að verið sé að gera þessar breytingar á þessari nefnd, en þetta er mjög lítið skref. Í 6. gr. frumvarpsins kemur einfaldlega fram að heimilt sé að veita erlendum lögreglumönnum lögregluvald á Íslandi. Þessi grein er ekki útskýrð nægilega vel. Ekki er settur góður rammi um hvað þetta þýðir og mér finnst það ekki góð lagasetning þegar mörgum ólíkum lagagreinum er splæst saman í eitt frumvarp og við þurfum annaðhvort að segja já eða nei við þeim öllum.