lögreglulög o.fl.
Herra forseti. Það er rétt sem kom fram í máli hv. þm. Olgu Margrétar Cilia að það eru nokkrir aðgreindir þættir í þessu frumvarpi sem felur í sér breytingar á lögreglulögunum. Hér er ekki um að ræða heildarendurskoðun á þessari löggjöf heldur er verið að takast á við þrjá afmarkaða þætti. Það er verið að koma á fót eða renna stoðum undir lögregluráð til að auka samstarf lögregluliða. Það er verið að tryggja lagastoð fyrir samstarfi við erlend lögregluyfirvöld, m.a. með heimildum til erlendra lögreglumanna þó að það sé alltaf á forræði íslenskra stjórnvalda. Í þriðja lagi er verið að styrkja stöðu eftirlitsnefndar um störf lögreglu. Allt eru þetta framfaramál og þess vegna styð ég frumvarpið.