151. löggjafarþing — 95. fundur,  11. maí 2021.

afleiðuviðskipti, miðlægir mótaðilar og afleiðuviðskiptaskrár.

643. mál
[15:19]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Óli Björn Kárason) (S):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár, nr. 15/2018 (dregið úr reglubyrði). Eins og í málinu sem ég mælti fyrir áðan þá barst aðeins ein umsögn og hún var frá Seðlabanka Íslands.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 648/2012, um OTC-afleiður, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár, jafnan kölluð EMIR, var veitt lagagildi hér á landi með lögum um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2019/834 um breytingu á reglugerð nr. 648/2012 að því er varðar frestun á stöðustofnunarskyldu, kröfur um skýrslugjöf, aðferðir til mildunar áhættu fyrir OTC-afleiðusamninga sem miðlægur mótaðili stöðustofnar ekki, skráningu og eftirlit með afleiðuviðskiptaskrám og kröfurnar fyrir afleiðuviðskiptaskrár, EMIR Refit, kveður á um breytingar á EMIR sem ætlað er að viðhalda því markmiði að tryggja gagnsæi um afleiðuviðskipti og valdheimildir eftirlitsaðila en skýra kröfur og í einhverjum tilvikum slaka á þeim til að einfalda afleiðuviðskipti og skýrslugjöf um þau og draga úr kostnaði.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 15/2018 til að leiða í íslenskan rétt þær breytingar sem leiðir af EMIR Refit-reglugerðinni.

Í 2. tölulið 2. gr. frumvarpsins er lagt til að Fjármálaeftirlitið verði eitt lögbært yfirvald í skilningi 22. gr. reglugerðarinnar í stað Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands. Í umsögn Seðlabanka Íslands kemur fram það sjónarmið að fremur ætti að tilgreina að Seðlabankinn sé einn lögbært yfirvald í skilningi reglugerðarinnar. Í því sambandi er bent á að Fjármálaeftirlitið sé hluti af Seðlabanka Íslands og að bankinn fari með þau verkefni sem Fjármálaeftirlitinu eru falin í lögum. Því sé Fjármálaeftirlitið ekki stofnun, öllu heldur sé tilvísun til þess í lögum vísun til eftirlitsstarfsemi Seðlabankans.

Leggur meiri hlutinn því til að Seðlabanki Íslands, í stað Fjármálaeftirlitsins, verði lögbært yfirvald samkvæmt lögunum.

Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með viðeigandi breytingu.

Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Óli Björn Kárason, Jón Steindór Valdimarsson, Brynjar Níelsson, Bryndís Haraldsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Smári McCarthy og Hjálmar Bogi Hafliðason.