afstaða ríkisstjórnarinnar til átakanna á Gaza.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ísland talar fyrir mannréttindum alls staðar á alþjóðavettvangi. Það er hluti af utanríkisstefnu okkar hvort sem við erum að ræða jafnrétti kynjanna, mannréttindi í stríðsátökum eða friðsamlegar lausnir. Við tölum fyrir mannréttindum og við tölum fyrir friðsamlegum lausnum. Af því að hv. þingmaður hvetur okkur til þess þá leyfi ég mér að segja að það gerum við og það mun ég líka gera á fundum mínum með Blinken og Lavrov. Þar verður að sjálfsögðu rætt um málefni norðurslóða en þar mun ég líka taka þessi málefni upp. Það skiptir gríðarlega miklu máli að þessi ríki beiti sér tafarlaust fyrir vopnahléi og friðsamlegum lausnum í kjölfarið.
Ég ætla ekki að þykjast hafa lausn á þessum áratugalöngu átökum, en það verður engin lausn nema strax verði komið á vopnahléi. Þar hefur António Guterres tekið mjög skýra afstöðu og undir hana tek ég. Afstöðu íslenskra stjórnvalda, af því að hv. þingmaður spyr um hana, hefur verið komið skýrt á framfæri. Það á að virða alþjóðalög og árásir á óbreytta borgara eru brot á alþjóðalögum. Þær eru óásættanlegar og mannfallið sem við sjáum í þessum átökum er fyrst og fremst meðal óbreyttra borgara. Þess vegna verður að koma á vopnahléi og síðan þarf auðvitað að reyna að finna friðsamlegar lausnir til lengri tíma. En við vitum líka að þessi landtaka er ekki ný af nálinni, hún hefur staðið árum og áratugum saman, og hún er ólögmæt. Það er líka afstaða Íslands.
Ég held að hv. þingmenn þurfi ekki að velkjast í vafa um afstöðu Íslands í þessum málum. Við munum hér eftir sem hingað til tala fyrir mannréttindum á alþjóðavettvangi.