151. löggjafarþing — 96. fundur,  17. maí 2021.

verðtrygging og verðbólga.

[13:23]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég fór hér áðan yfir horfurnar hvað varðar verðbólguna og við þurfum líka að horfa til þess að þær spár sem núna eru að birtast byggi á því annars vegar að styrking krónunnar verði til þess að draga úr verðbólgu og að viðspyrna ferðaþjónustunnar, sem við getum verið nokkuð bjartsýn á miðað við stöðuna núna, muni sömuleiðis styðja við þá þróun, þannig að ég held að það skipti miklu máli að horfa til þróunar á næstu mánuðum í þessum efnum.

Ég vil líka minna hv. þingmann á að hér inni í þingi er ríkisstjórnarfrumvarp um vexti og verðtryggingu sem miðar að ákveðnum takmörkunum á 40 ára verðtryggðum lánum. Það væri óskandi að hægt væri að ljúka vinnu við það frumvarp, sem var hluti af yfirlýsingu okkar í tengslum við lífskjarasamninga. Þegar við skoðum hvernig þessi mál hafa verið að þróast þá hefur þróunin verið sú að markvisst hefur dregið úr vægi verðtryggingar á innlendum lánamarkaði. Mun fleiri velja sér óverðtryggð lán. Það er jákvæð breyting gagnvart verðtryggingunni. Þetta frumvarp er hér inni og það er hægt að ljúka vinnu við það.