151. löggjafarþing — 96. fundur,  17. maí 2021.

umferð um Hornstrandir.

[13:27]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa fyrirspurn. Vegna þess sýknudóms sem hv. þingmaður nefnir þá er það eitthvað sem við munum skoða í ráðuneytinu, en ég hef ekki svör við því hvað þetta þýðir nákvæmlega eins og staðan er núna. Síðan er hin spurningin sem hefur að gera með nýjar reglur um hámarksfjölda þeirra sem geta komið í land í friðlandinu frá skemmtiferðaskipum. Þær byggja á nýrri stjórnunar- og verndaráætlun sem unnin hefur verið fyrir friðlandið og fram fór mjög umfangsmikil vinna við. Hún var unnin í sátt þeirra aðila sem þar eru, þ.e. landeigenda og sveitarfélaganna. Ég á því von á því að reynt verði að fylgja því eftir með þeim hætti að þarna starfi náttúrlega landverðir og huga þarf að því hvort aðrir aðilar þurfi að koma að þessu sem geti tryggt að eftir þessu verði farið. Þarna er líka fræðsluskylda. Því er þá væntanlega beint til þeirra sem eru á þessum skemmtiferðaskipum að þetta sé hámarkið og mælst til að reynt verði að fylgja því eins og hægt er. Þetta er í rauninni ákall frá fólkinu á svæðinu sem þarna er, landeigendum, um að reyna að takmarka þann fjölda sem veldur þarna talsverðum ágangi, eins og ég hef skilið málið.