151. löggjafarþing — 96. fundur,  17. maí 2021.

Myndlistaskólinn í Reykjavík.

[13:36]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Eins og ég hef reifað hér þá höfum við verið að auka fjármuni til framhaldsskólastigsins. Við höfum séð mikla aðsókn í allt sem tengist verklegu námi og við vorum að samþykkja lög um aðgengi að háskólastiginu. Hvað er ég að segja með þessu svari? Jú, að sjálfsögðu erum við að leggja áherslu á listnám. Við höfum verið í góðum viðræðum við Myndlistaskólann í Reykjavík og við höfum fullan hug á því að styðja frekar við menntun í landinu. Við erum mjög stolt af framhaldsskólastiginu okkar, hvernig það hefur allt gengið. Við sjáum að bæði skólastjórnendur og kennarar hafa náð vel utan um stöðuna. Við munum halda áfram að leggja áherslu á allt listnám eins og við höfum verið að gera.