151. löggjafarþing — 96. fundur,  17. maí 2021.

flugvallamál.

[13:37]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Mig langar að spyrja hæstv. samgönguráðherra út í svokallað nóvembersamkomulag sem Reykjavíkurborg og ríkið skrifuðu undir í nóvember 2019, þ.e. borgarstjóri og samgönguráðherra. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hefur verið unnið eftir þessu samkomulagi? Er það skilningurinn að vel hafi verið unnið eftir því sem samið var um? Síðan þetta samkomulag var gert hefur hafist skipulag við Skerjabyggð, og skipulagið er komið langt í ferli. Hollenska geimvísindastofnunin hefur kannað áhrif þessarar byggðar á vindafar og gert athugasemdir við það, alvarlegar athugasemdir varðandi öryggi. Síðan langar mig líka að spyrja út í áhrif jarðhræringa í Geldingadölum á hugmyndir um flugvöll í Hvassahrauni. Hefur það einhver áhrif á þessa vinnu varðandi þetta samkomulag?

Nú segja okkar virtustu jarðvísindamenn að jarðhræringar á Reykjanesi geti staðið yfir næstu 200–300 árin miðað við reynsluna fyrir 800–1.100 árum. Er þá ekki rétt skilið að þessir atburðir geta haft töluverð áhrif á framvindu þessa máls og er þá ekki réttast að taka þetta skipulag fyrir af hálfu ríkisins til að vernda þá hagsmuni sem snúa að öryggismálum þjóðarinnar, að skaða ekki völlinn með þeim hætti meðan þetta er skoðað betur í heild sinni?

Einnig langar mig rétt í lok fyrri hluta þessarar fyrirspurnar að spyrja um framkvæmdir við nýja flugstöð á Reykjavíkurflugvelli. Hver er staða málsins á þessum tímapunkti? Nú hefur þetta tafist í ferli eins og við höfum verið að sjá á undanförnum mánuðum, gengið hægt. Þessi flugstöð er náttúrlega þjóðarskömm, við sjáum það öll, hrein þjóðarskömm eins og hún er í dag.